Aðventuferðir til Dresden

Þjóðverjar eru allra þjóða mestir jóladýrkendur. Borgir og bæir keppast við að skreyta götur og torg — jólamarkaðir rísa í öllum göngugötum og torgum og börn og fullorðnir fara um í hópum og syngja jólalög. Gestir markaðanna klæðast pelsum og loðhúfum — jafnvel ber á að menn klæðist þjóðbúningum hvers héraðs. Eitt eiga þó allir sameiginlegt — góða skapið og glas af jólaglöggi við höndina. 

Við förum í gönguferð um Dresden, sem tekur 2 - 3 klst. Á laugardeginum förum við upp í Arzfjöll í smábæinn Seiffen. Þar skoðum við glæsilegan jólamarkað, en hann er talinn einhver sá skemmtilegasti í allri Evrópu.

Flogið verður til Berlínar og keyrt þaðan til Dresden þar sem gist er á Hotel Ibis Dresden. Hótelið er í hjarta borgarinnar og morgunverður er innifalinn.

Fararstjóri Kristín Jóhannsdóttir, sem lengst af var fréttaritari RUV í Berlín og gjörþekkir svæðið

Ferðir

25-28. nóvember (3 nætur)

bóka ferð »

ferðatilhögun »


28.nóvember -5. desember (7 nætur)

bóka ferð »

ferðatilhögun »

INNIFALIÐ: Flug og sk. til og frá Berlín, gisting m/morgunverði í þrjár nætur á Hotel Ibis Central, rúta til og frá Dresden, 3 kl.st. skoðunarferð um borgina og íslensk fararstjórn.