Einstakt tónlistarlíf Íra setur svip sinn á daglegt líf í Dublin. Unnendur Þjóðlaga og sígildra tónlistar verða ekki í vandræðum með að finna tónleika við sitt hæfi og hvergi finnst skemmtilegri kráarstemmning. Götulistamenn njóta sín að fullu, lista- og menningarlíf er blómlegt allt árið um kring.
Í Írska lýðveldinu búa um 3.5 miljónir en í Dublinborg rétt rúmlega 1 miljón manna. Áin Liffey skiptir borginni í tvo hluta, norður og suður. Í hugum margra er Dublin kannski þekktust fyrir sínar fjölmörgu krár og írska tónlist hvort heldur sem er tregablandin þjóðlagatónlist eða írskt nútímapopp. Krár og tónlist skipa vissulega stóran sess í borgarlífi Dublin en eru þó aðeins brot af því sem borgin býður upp á en fjölbreytileikinn er þar í fyrirrúmi. Elsta krá í Dublin er hin magnaða The Brazen Head sem var stofnuð árið 1198 og ætti enginn að láta hana fram hjá sér fara. Einnig má skella sér í skoðunarferð í höfuðstöðvar Guinness verksmiðjunnar þar sem hægt er fræðast um þennan annars ágæta ölkeldusafa. Glæsileg söfn er að finna í borginni, fallegir almenningsgarðar eins og St. Stephens Green og voldugar kirkjur á borð við kirkju heilags Patreks.
Ekki má gleyma hinum stórfenglega dýragarði sem er í Dyflinni, DUBLIN ZOO. Þangað heimsækja um 1 miljón manna árlega til að skoða hið villta og í senn magnaða dýralíf sem garðurinn hefur uppá að bjóða. Garðurinn er ein helsta stoppustöð fjölskyldunnar sem kemur til stytta sér dægradvöl og njóta dagsins á meðal dýranna.
Miklar breytingar hafa orðið á Dublin á síðari árum, hún hefur vaxið gríðalega og hefur nánast breyst úr sveitaþorpi í stórborg með mikilli aukningu erlendra ferðamanna. Borgin hefur þó haldið sínum sjarma sem ekki er síst að þakka hinu þægilega viðmóti íbúa hennar. Margar minjar eru einnig í Dublin tengdar hinum þekktu írsku rithöfundum en framlag Íra til bókmennta hefur verið sérstaklega merkileg. Þjóðin státar m.a. af þremur Nóbelskáldum: George Bernard Shaw, William Butler Yeats og Samuel Beckett.
Nóg er af verslunum í Dublin. Borgin er þægileg yfirferðar og stutt er á milli helstu verslunargatnanna sem eru sitt hvoru megin við ána Liffey. Fyrir sunnan er helsta verslunargatan Grafton Str. þar sem hægt er að finna ýmsar merkjavörur og sérverslanir. Fyrir norðan ána er svo Henry Str. og við hana standa ýmis minni vöruhús og verslunarmiðstöðvar. Verslunarmiðstöðin. Verslunarmiðstöðin Dundrum Town Centre er gríðarlega flott og býður uppá óendanlega verslunarmöguleika. Dundrum var betrumbætt árið 2005 og þykir hið glæsilegasta.
Mikið er í gangi í Dublin þessa helgina. Nefna má: The Brazen Head kráin er með klassísk írsk þjóðlaga og sögukvöld nánast á hverju kvöldi að undanskildum mánudagskvöldum. 3ja rétta máltíð fylgir og kostar þessi atburður 44evrur.
The Irish Dance Party er skemmtileg tónlistar og danssýning þar sem írskir dansarar og tónlistarmenn flytja mörg af þekktustu lögum Írlands. Dublin City of Science 2012. Einnig eru í boði fjöldinn allur af klassískum írskum þjóðlagatónleikum og leikhússýningum.
Sjá nánar >>
Ertu að skipuleggja ferð fyrir 11 eða fleiri? Við finnum ferð fyrir hópinn hvort sem þið eruð 11 eða 500. Sendu okkur línu!
Hittumst við hliðið á Stephen´s Green, efst við Grafton Stree, kl. 11:00 Gengið um miðborgina og framhjá helstu byggingum þar, eins og kirkju heilags Patreks og Kristskirkjunni, en þetta eru dómkirkjur Dublinarbúa. Dublinarkastali og Trinity College ásamt St Stephens Green og fleiri merkum stöðu. Óþarfi er að skrá sig í þessa ferð og er hún farþegum að kostnaðarlausu. Verð: ókeypis Innifalið: íslensk fararstjórn
Vinsamlegast fylltu út þá liði sem eru hér fyrir neðan til að ganga frá bókuninni.
Heildarverð: kr. 0
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu
Helgi Daníelsson er margreyndur í framleiðslu- og fararstjórn en hann starfaði um árabil fyrir Samvinnuferðir- Landsýn þar sem hann hafði yfirumsjón með framleiðslu á pakkaferðum um allan heim. Hann hefur víðtæka reynslu af fararstjórn og það eru fáir sem þekkja heimsborgina Dublin betur en Helgi.
Verð á mann frá: 87.900 kr.