Dagskrá haustsins

Dags Fjöldi daga Fararstjóri
30 sept. - 7. okt 7 dagar Ingibergur Jóhannsson
2. - 9. okt 7 dagar Ingibergur Jóhannsson
9. - 16. okt 7 dagar Ingibergur Jóhannsson

Spánn - La Finca

La Finca golfvöllurinn er mörgum íslendingum kunnugur sem einn albesti golfvöllurinn á Murcia - Alicante svæðinu og nú er búið að opna 5 stjörnu lúxushótel við völlinn.

Golfdeild ÚÚ er stolt af því að bjóða íslenskum kylfingum þennan frábæra valkost sem er aðeins 50 km. í suð-vestur frá flugvellinum í Alicante.

Öll hönnun hótelsins er nýtískuleg og björt og gætt að hverju minnsta smáatriði. Herbergin eru búin öllum helstu þægindum. Baðherbergin er mjög rúmgóð með bæði baðkari og sturtuklefa. Val er um King size rúm (2m x 2m) eða tvö aðskilin rúm (1m x 2m).

Heilsulind hótelsins er 800 m2, búin öllum þægindum í samræmi við annan lúxus á hótelinu. Boðið er upp á fjölda af meðferðum til að liðka auma vöðva eða í fegrunarskyni.

Kvöldverðurinn sem er innifalinn í verði ferða er A la carte á Cynera einum af veitingastöðum hótelsins.

Eigendur La Finca golfvallarins eiga jafnframt Villa Martin og Las Ramblas golfvellina. Farþegum ÚÚ Golf býðst að leika alla 3 vellina í hverri ferð.

La Finca völlurinn er með nokkuð breiðar brautir og margar einstakar flatir. Það er samdóma álit flestra sem hafa leikið La Finca að völlurinn sé einn sá albesti á Murcia svæðinu.

Las Ramblas sem hefur gengið í gegnum töluverðar endurbætur síðustu ár er sannkölluð veisla fyrir alla kylfinga. Las Ramblas er skógarvöllur með miklu landslagi og hér reynir á dagsformið. Okkar álit er að er það ætti engin að láta Las Ramblas framhjá sér fara ef tækifæri til að leika hann býðst.

Villa Martin er mörgum kunnugur. Byggður 1972 og var lengi talin með betri golfvöllum á spáni. Hönnun og landslag vallarins þykir henta öllum kylfingum óháð forgjöf en jafnframt að það komi til með að reyna á allar kylfurnar í pokanum.

Ath. Afsláttur ef ekki leikið golf er kr. 35.000.

Vefsíða La Finca Golf Resort

Innifalið

  • Flug með sköttum og flutningur á golfsetti
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Morgun- og kvöldmatur
  • Ótakmarkað golf
  • Íslensk fararstjórn