Dagskrá haustsins

Dags Fjöldi daga Fararstjóri
25. sept - 2. okt 7 dagar Hans Henttinen
7. - 14. okt 7 dagar Hans Henttinen
14. - 21. okt 7 dagar Hans Henttinen
21. - 28. okt 7 dagar Hans Henttinen
28. okt - 6. nóv 9 dagar Hans Henttinen

OASIS PLANTIO GOLF - ALLT INNIFALIÐ

Nýjasta perlan hjá golfdeild Úrvals Útsýnar.
Aðeins 5 mínútur frá flugvellinum í Alicante og 3 km. frá miðbæ Alicante.

Plantio þekkja margir íslenskir kylfingar sem hafa dvalið á Alicante svæðinu enda er völlurinn nú rúmlega 10 ára gamall. Plantio er tilbúinn skógarvöllur með tveimur vötnum sem koma við sögu á 6 brautum. Þrátt fyrir nálægðina við flugvöllinn og borgina þá er ekkert ónæði af þeim völdum og líður manni eins og maður sé staddur í sveitasælunni við leik á Plantio. Einu húsin sem standa við völlinn eru nýju íbúðirnar sem gestir okkar gista í.

Íbúðirnar sem eru tveggja og þriggja svefnherbergja eru splunkunýjar, fullbúnar lúxusíbúðir.
Allar búnar tveimur plasma sjónvörpum, hitastýrikerfi, hárþurrku, öryggishólfi, 2 baðherbergjum, stofu, borðstofu, góðum svölum, fullbúnu eldhúsi og þvottahúsi með þvottavél og þurrkara. Íbúðirnar eru um 500 metra frá klúbbhúsinu og sjá starfsmenn Plantio um að skutla farþegum á milli. Lögð er áhersla á að allar íbúðir sem okkar farþegar eru í séu með útsýni yfir golfvöllinn og eftirmiðdagssól á svalirnar.
 
Golfvellirnir eru tveir. 18 holu völlur, par 72, 6010 metrar af gulum og 5350 metrar af rauðum. Einnig er 9 holu par 3 æfingavöllur.

Okkar mat er að OASIS PLANTIO sé mjög góð viðbót fyrir íslenska kylfinga. Nálægðin við flugvöllinn gerir aksturinn milli flugvallar og áfangastaðar nær engan og nálægðin við borgina býður upp á ferðir til verslunar, menningar og skemmtana. Íbúðirnar eru þar að auki glæsilegar og ekki skemmir fyrir að þær hafa minnst tvö svefnherbergi sem hentar sérstaklega vel ef tveir ferðast saman.

Innifalið í ferðum okkar til OASIS PLANTIO

  • Flug og flugvallaskattar, flutningur á golfsetti
  • Akstur milli flugvallar og hótels
  • Ótakmarkað golf alla daga
  • Allt innifalið*
  • Íslensk fararstjórn

*Allt innifalið:

Morgunmatur kl. 07.30 - 10.30.
Hádegismatur kl. 12.30 - 16.00 - Þar sem flestir vilja fá sér snarl eftir golfið þá höfum við samið þannig að okkar farþegum býðst að fá sér hádegismat í klúbbhúsinu. Í boði verður tilbúinn matseðill og tveir drykkir. Gestir geta þó einnig fengið sér hádegismat í veitingaafgreiðslunni hjá íbúðunum kjósi þeir það fremur.
Kvöldmatur kl. 19.30 - 22.30.
Veitingaafgreiðslan hjá íbúðunum er opin frá 07.30 til 23.00 alla daga. Þar er í boði innlendir drykkir auk snarls, s.s. pizzur, samlokur, laukhringir og franskar án endurgjalds.