Gisting
Möguleiki er að velja um tvær mismunandi gistingar.
Er gott 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Americas ströndinni á Tenerife. Á hótelinu eru 2 veitingastaðir, góð sundlaug, barnasundlaug, líkamsrækt, sauna, tennisvellir og snyrti- og hárgreiðslustofu.
Er mjög gott 4 stjörnu hótel á frábærum stað örstutt frá ströndinni. Hótelið er rómað fyrir góðan mat og stutt er í verslanir og fjöldi skemmtistaða er á svæðinu.
Stutt er á milli Hótel Gala og Hótel Hesperia Troya, þar sem þau standa hlið við hlið á ströndinni.
Golfið
Las Americas völlurinn er mörgum íslenskum kylfingum vel kunnugur enda verið einn vinsælasti golfvöllurinn á eynni.
Völlurinn er staðsettur við Las Americas ströndina og því aðeins í c.a. 5 mín aksturs fjarlægð frá báðum hótelum, sem kemur sér einstaklega vel þar sem farþegar sjá sjálfir um ferðir milli gististaðar og golfvallar.
Las Americas golfvöllurinn er 18 holu með mikla fjölbreytni í brautum. Hann býður betri kylfingum að reyna hæfnina en er um leið hæfilega mikil áskorun fyrir kylfinga með hærri forgjöf.