Villaitana
Benidorm, Spáni
Úrval Útsýn er með frábæra golfferð í vor og bjóða upp á val um að gista á Villaitana 4 stjörnu eða Gran Villaitana 5 stjörnu hótelum sem eru staðsett við golfvellina. Öll umgjörð er hin glæsilegasta og einnig er örstutt að skjótast með leigubíl niður í Benidorm í verslanir, veitingahús og næturlíf.
Golfvellirnir eru tveir, hannaðir af Jack Nicklaus.
Levante par 72, hálfgerður links-völlur en án kargans sem kemur sér reyndar vel fyrir þá ekki svo beinu. Fremur harðar brautir, mikið af glompum og flatirnar eru stórar með miklu landslagi. Af öftustu teigum er Levante 6.612 metrar og býður því þeim högglengri til veislu.
Levante völlurinn er hannaður með það í huga að verða keppnisvöllur á alþjóðavísu en þrátt fyrir það hefur hann reynst forgjafarhærri kylfingum nokkuð viðráðanlegur. Brautirnar eru nokuð breiðar og ekki mikið um erfiðan karga. Það eru einna helst glompurnar og 4 púttin sem hafa verið að stríða fólki. Okkar álit er að Levante sé frábær valkostur fyrir alla kylfinga.
Poniente par 62. Hér er um algjöra perlu að ræða. Fallegra landslag í golfvelli er erfitt að finna. Þrátt fyrir að vera aðeins 3.858 metrar þá reynist hann mörgum ansi erfiður. Engin par 5 braut er á Poniente. Það er okkar álit að hér er frábær æfingavöllur fyrir alla kylfinga ekki síst þá forgjafarlægri. Forgjafarhærri kylfingum ráðleggjum við að taka með nóg að boltum þegar á að leika Poniente.
Innifalinn golfbíll þegar við leikum Poniente.
Fyrir þá sem vilja leika meira en 18 á dag þá gildir almenna reglan að það er ekki hægt að bóka seinni hring fyrirfram. Ef það er laus rástími þá er það gjaldfrítt.
Aðeins er um 45 mín. akstur frá flugvelli inn á hótel.
Innifalið í öllum ferðum
- Flug með sköttum og flutningur á golfsetti
- Akstur milli flugvallar og hótels
- Morgun- og kvöldmatur
- Ótakmarkað golf alla daga
- Golfbíll þegar leikið á Poniente
- Íslensk fararstjórn
Áhugaverðar vefsíður:
Heimasíða Hótelsins.
Skoðaðu hótelið í sýndarveruleika.