Sérferðir Heldri Kylfinga!
14. - 24. apríl - UPPSELTl
20. - 28. apríl
20. apríl - 5. maí
24.apríl - 4. maí
Að venju verða vinsælu heldri kylfinga ferðirnar á sínum stað með meistara Kjartani Páls.
Nú þegar hefur töluvert bókast þannig að við bendum fólki á að hafa hraðar hendur ef það á að tryggja sér sæti í eina af þessum skemmtilegu ferðum.
Þar sem heimflugið er seint á brottfarardegi þá innifelum við herbergin fram að brottför ásamt kvöldmat. Því þarf engin að hafa áhyggjur af því hvort hægt sé að halda herberginu eitthvað lengur síðasta daginn. Og að sjálfsögðu eru golfbílarnir innifaldir með golfinu á Husa.
Alicante
Það er samdóma álit þeirra sem til þekkja að Alicante Golf er og hefur verið einn best viðhaldni völlurinn á öllu svæðinu. Dagskipun eiganda til starfsmanna er einfaldlega að aðeins það besta sé nógu gott. Nýlokið er endurgerð allra flata á vellinum og er óhætt að segja að hreint stórkostlega hafi tekist til.
Sjá nánar um hótel »