Gönguferðir Úrvals Útsýnar
Úrval Útsýn er frumkvöðull í gönguferðum erlendis og er enn í fararbroddi
Vinsældir gönguferða hafa aukist mikið á undanförnum árum og markmið okkar er að koma til móts við ört stækkandi hóp þeirra sem vilja fara í skipulagðar gönguferðir erlendis, reyna hæfilega á sig í góðum hópi og upplifa ferðalög á annan hátt.
Í gönguferðunum okkar er alltaf einn fararstjóri og stundum tveir, gistingin sérvalin og fullt fæði innifalið í ferðunum.
Við bjóðum upp á gönguferðir um Tenerife í samstarfi við innlenda aðila sem þekkja hvern krók og kima á eyjunni og þessar ferðir hafa slegið í gegn og hafa selst upp síðasta eitt og hálfa árið. Hótelin okkar sem við höfum notað í ferðirnar hafa líkað vel, staðsetning, matur og aðbúnaður allur – engin ástæða til að breyta því.
Gönguferðirnar um hið gríðarlega fallega Oberstdorf svæði hafa einnig slegið í gegn og sumarið 2011 bjóðum við upp á fleiri en eina frábæra ferð um það svæði.
Fyrir utan skipulagðar ferðir getum við skipulagt ferðir ferði fyrir hópa ef ekkert annað í dagskránni hentar.
Gönguferðir
GÖNGUFERÐIR OBERSTDORF - MERAN (Í ÞÝSKU OG ÍTÖLSKU ÖLPUNUM)
GÖNGUFERÐIR UM BLÓMAEYJUNA TENERIFE
GÖNGUFERÐIR UM OBERSTDORF Í ÞÝSKU ÖLPUNUM
Bókanir og nánari upplýsingar og hjá Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4000.