Gönguferðir um blómaeyjuna Tenerife

Frábær gönguferð á Tenerife, blómaeyjunnar vinsælu í Kanaríeyjaklasanum. Kanaríeyjarnar eru 7 talsins og er Tenerife þeirra stærst. Nafnið Tenerife er komið úr mállýsku Guanche fólksins, frumbyggja Eyjanna, og þýðir í raun "Hvíta fjallið". Sennilega er þar átt við Teide, hæsta fjall eyjarinnar 3718 metrar, sem teygir sig hátt til himins og ber höfuð og herðar yfir aðra tinda eyjaklasans. Að ganga þangað við bestu aðstæður er algjört ævintýri. Uppi á sléttunni þar sem Teide stendur er landslagið margbrotið og útsýnið frábært.
Landslagið á Tenerife er mikilfenglegt og býður upp á ógleymanlegar gönguleiðir. Vegna hins milda loftslags eru eyjarnar of kallaðar eyjar hins eilífa vors. Loftslagið á Tenerife er nefnilega með eindæmum milt og þar er minnsti munur hitastigs sumars og veturs á heimsvísu.

Dvalið verður í Puerto de la Cruz í 4 nætur og síðan 3 nætur á suðuhluta eyjarinnar.

Margrét Árnadóttir leiðsögumaður, jógakennari og göngugarpur verður fararstjóri í ferðinni og henni til aðstoðar er innfæddur leiðsögumaður.



Gönguferð um Tenerife 22.-29. mars 2011

Ferðatilhögun 22. - 29. mars 2011

Verð á mann í tvíbýli: kr. 184.500,-
Innifalið : flug, flugvallarskattar, flugvallarakstur erlendis, gisting í 7 nætur, fullt fæði, drykkir með mat, gönguferðirnar, íslenskur og erlendur fararstjóri í gönguferðum.
Viðbót fyrir einbýli er kr. 25.000,-



Nánari upplýsingar hjá Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4000.