Hjólaferðir

Hreyfing í fallegu umhverfi og góðum félagsskap

Fólk vill í auknum mæli eyða fríinu í að skoða heiminn, hreyfa sig í leiðinni og upplifa innan um hresst fólk í sömu erindagjörðum. Hjólaferðir er ein leið til þess, sannkölluð upplyfting fyrir líkama og sál. Úrval – Útsýn ætlar að bjóða upp á fjölbreyttar og spennandi hjólaferðir. Einhvern tímann er allt fyrst og hjólaferðirnar okkar eru fyrir alla; hvort sem fólk hefur farið í svona ferðir áður eða aldrei. Við höfum sett inn leiðbeinandi erfiðleikastuðul fyrir fólk, en svo er oftast möguleiki að sleppa einhverjum deginum í ferðum, ef menn vilja ekki ofgera sér. Þá sjá fararstjórar okkar um að gera þær ráðstafanir sem til þarf. Í hjólaferðunum er hjólað á daginn og oft gerir allur hópurinn eitthvað saman á kvöldin líka, eins og að fara saman út að borða, en hver og einn hefur sína hentisemi með það. Það fer líka svolítið eftir hvar dvalið er hverju sinni og hvaða vegalengd hefur hjóluð þann daginn hvernig kvöldin verða. Dagskráin er væntanleg innan tíðar og verður hér á síðunni, við hvetjum ykkur til að fylgjast með.

Allt sem þú þarft að vita finnurðu í Áður en farið er í hjólaferð.

Áður en farið er í hjólaferð

Áður en þú bókar ættirðu að kynna þér Áður en farið er í hjólaferð.