Ferðskrifstofan Urval Utsyn

-

Vínhátíð við Mósel

  • Um ferðina
  • Gistingar
  • Bóka
  • Myndir
  • Fararstjóri
  • Verð og Innifalið
bernkastel.jpg
29.ágúst - 4.september 2013
Í miðjum Móseldalnum í Þýskalandi, þar sem áin Mósel liðast meðfram bröttum hlíðum og vínekrum á leið sinni að Rín, kúrir lítill fallegur bær sem heitir Bernkastel. Gömul bindiverkshús, litlar vínkrár, veitingastaðir og ferðamannaverslanir setja svip sinn á gamla bæinn. Hérna snýst lífið um vínrækt og ferðaþjónustu, bærinn iðar af lífi og flestum finnst gaman að vera til. Handan árinnar er svo nýrri hluti bæjarins, Kues

Um ferðina

Um mánaðamótin ágúst- september er mikil vínhátíð í bænum og því mikið um dýrðir í Bernkastel-Kues. Hvernig væri að skella sér í Móseldalinn og njóta allrar dýrðarinnar, fræðast um vínmenningu og mannlíf og meira til? Gist verður í 6 nætur á góðu 4* hóteli rétt ofan við bæinn og farið verður í kynnisferðir í Rínardalinn og til Trier á milli þess sem gestir taka þátt í hátíðarhöldunum í bænum, rölta um vínekrurnar, kynna sér líf heimamanna, fara í siglingu, bragða á góðum mat og veigum og njóta lífsins í makindum. Sannkölluð draumadvöl í Móseldalnum!

FERÐATILHÖGUN

29. ágúst - fimmtudagur

Flogið með Icelandair til Frankfurt kl 7:25 að morgni og lent þar um kl. 13. Ekið til Bernkastel-Kues (um 150 km), fallegs bæjar við Mósel. Gist í 6 nætur á Hotel Moselpark, sem er 4* hótel með góðri aðstöðu á hæðunum rétt ofan við bæinn. Á hótelinu er veitingastaður, bar, líkamsrækt, innisundlaug og fleira. Eftir að gestir hafa komið sér fyrir er tilvalið að kanna aðeins umhverfið áður en farið er í kvöldverðinn á hóteli.

30. ágúst - föstudagur

Eftir morgunverð byrjum við dvölina á að fara í dagsferð til að kynnast ánum tveim, Mósel og Rín. Nánar. Ekið verður að Rín, farið í einn líflegasta bæinn við ána, Rüdesheim, ekið fram hjá Loreley og til hins fallega bæjar Koblenz, þar sem Mósel rennur í Rín. Njótum lífsins og fagurs landslags áður en haldið verður til baka. Kvöldverður á hóteli.

31. ágúst - laugardagur

Nú er vínhátíðin komin á fullt og tími til kominn að skoða bæinn betur, rölta þangað, heilsa upp á heimamenn og gesti og kanna hvað er um að vera í Bernkastel-Kues. Flugeldasýning um kvöldið. Kvöldverður á eigin vegum.

1.september - sunnudagur

Frjáls dagur til að njóta lífsins, hvort sem þar er fólgið í að „liggja í leti“, taka þátt í hátíðarhöldunum og skrúðgöngunni eða eitthvað þar á milli! Kvöldverður á hóteli.

2. september - mánudagur

Dagsferð til Trier við Mosel, elstu borgar Þýskalands. Borgin er bæði falleg og með margar áhugaverðar og sögulegar minjar, en einnig þykir gott að versla þar. Skoðum og njótum. Kvöldverður á hóteli.

3. september - þriðjudagur

Frjáls dagur til að klára að gera allt sem átti að gera, t.d að fara í siglingu á Mósel, fá sér góðan göngu- eða hjólatúr, heimsækja vínbændur eða annað. Kvöldverður á eigin vegum.

4. september - miðvikudagur

Eftir morgunverð verðum við að kveðja Bernkastel og aka til Frankfurt, en þaðan er flogið heim til Íslands kl. 14:00 og lending áætluð kl. 15:35.

Kort af svæðinu


Skoða Vorferð 2013 á google maps