Ferðskrifstofan Urval Utsyn

-

Fegurð Austurríkis

  • Um ferðina
  • Gistingar
  • Bóka
  • Myndir
  • Fararstjóri
  • Verð og Innifalið
austurriki1.jpg
8. - 20 ágúst 2013
Austurríki hefur oft verið nefnt sem eitt fallegasta land heims. Það liggur hvergi að sjó og er minna en Ísland, en náttúrufegurðin, fjölbreytnin, sagan, menningin, vingjarnlegt fólk og snyrtilegt umhverfi er meðal þess sem heillar flesta sem þangað koma. Í þessari 12 daga draumaferð verður farið um margar af þekktustu perlum landsins, skyggnst inn í söguna, mannlífið og náttúruna í fylgd fararstjóra sem þekkir landið afar vel.
Um ferðina

Hvort sem það er náttúrufegurðin í Salzkammergut, Dónársigling, Vínarborg, Klagenfurt, „austurríska rívíeran“ við Wörtersee eða fjalladýrð Alpanna, - allir staðir heilla, hver á sinn hátt. En þar með er ekki allt búið! Fjallaperlan Bled í Slóveníu og hin eina sanna München í Þýskalandi eru rétt handan landamæranna og að sjálfsögðu förum við þangað líka! Sannarlega draumaferð á fegursta tíma. Gist verður í 2-3 nætur á hverjum stað á góðum hótelum og mjög mikið innifalið í verði.

KEISARAYNJAN SISI

Í ferðinni mun sérstakur „heiðursgestur“ skipa veglegan sess, sjálf keisaraynjan Sisi! Sisi var ein af athyglisverðustu konum 19. aldar. Hún hét Elísabet en fjölskyldan kallaði hana Sisi. Kornung giftist hún náfrænda sínum, keisaranum af Austurríki sem var einn voldugasti maður Evrópu á þeim tíma. Þau eignuðust börn og öll hugsanleg veraldleg gæði og Sisi var talin ein fegursta kona álfunnar. En ekki er allt sem sýnist. - Á ferðalaginu verður fjallað nánar um þessa merkilegu konu og komið verður við á stöðum sem tengjast lífi hennar, enda hefur fararstjórinn kynnt sér sérstaklega sögu Sisi. .

FERÐATILHÖGUN

8. ágúst – fimmtudagur . Ísland – München - Salzkammergut

Flogið með Icelandair til München í Þýsklandi kl. 07:20 og lent þar kl. 13:05 að staðartíma (2 klst. tímamunur). Ekið verður til hins fagra Salzkammergut héraðs í vesturhluta Austurríkis, þar sem gist verður við eitt af yndislegu vötnunum, Traunsee, í 2 nætur á góðu hóteli. Kvöldverður á hóteli. Akstur um 280 km.

9. ágúst – föstudagur. Salzkammergut

Salzkammergut er eitt af þessum fallegu héruðum í Austurríki þar sem vötn, fjöll og fegurð spila saman á einstakan hátt. Við förum í bíltúr í dag og skreppum m.a. til heilsubæjarins Bad Ischl, sem var sumaraðsetur keisarafjölskyldunnar og því heilmikið að frétta af Sisi þar! Til baka á hótel og kvöldverður.

10. ágúst – laugardagur. Salzkammergut – Dóná – Vínarborg

Eftir morgunverð kveðjum við Traunsee og höldum sem leið liggur í átt að hinni einu sönnu Dóná. Þeir eru margir listamennirnir sem hafa lofsungið þessa miklu móðu, frægast er trúlega framlag Jóhanns Strauss með valsinum þekkta „Donau so blau“. Við tökum okkur far með einu af fljótaskipunum og siglum hluta leiðarinnar til Vínarborgar, eða frá Melk til Krems, og síðan er haldið áfram til Vínarborgar. Komið þangað undir kvöld þar sem kvöldverður bíður. Gist í þrjár nætur á góðu hóteli nálægt miðbæ. Um 300 km akstur.

11. ágúst – sunnudagur. Vínarborg

Vínarborg er höfuðborg Austurríkis og ein af þekktustu menningarborgum heims. Hún ber vott um mikla sögu, keisaralegan glæsileika, listir og menningu sem vart á sinn líka. Hérna bjuggu keisarar og hér hefur tónlist, leiklist og aðrar listir blómgast og kaffihúsamenningin er einstök. Í dag förum við í kynnisferð um borgina og kynnumst helstu kennileitum og merkum stöðum. Hápunktur dagsins er heimsókn í Hofburg, keisarahöllina, þar sem hægt verður að skoða Sisi-safnið og vistarverur þeirra hjóna. Í Hofburg er núna aðsetur forseta Austurríkis , þar er hinn frægi Spænski reiðskóli og Vínardrengjakórinn er þar með aðstöðu sína. Þeim sem þess óska gefst kostur á að fara á Mozart-Strauss tónleika um kvöldið, en kvöldverður er á eigin vegum.

12. ágúst – mánudagur. Vínarborg

Í dag er haldið áfram að skoða borgina og farið verður til Schönbrunn hallar, sem stundum er kölluð Versalir Vínar. Í þessari glæsilegu og stóru sumarhöll dvöldu keisararnir oft og þar voru Franz Joseph og Sisi kona hans engin undantekning. Umhverfis höllina eru fallegir garðar. Síðdegið er frjálst. Um kvöldið verður farið í svokallaðan „Heuriger“, sem er matur og skemmtun í vínbænum Grinzing í borgarjaðrinum.

13. ágúst – þriðjudagur. Vínarborg – Klagenfurt

Eftir morgunverð er Vínarborg kvödd og við ökum sem leið liggur um fallegt landið í suðurátt. Tilvalið að stoppa aðeins í hinni fallegu borg Graz í smá hressingu. Síðla dags er komið til höfuðstaðar Kärnten héraðs, Klagenfurt. Borgin stendur við hið mikla vatn Wörthersee, sem er stundum kallað „austurríska rívíeran“ . Í Klagenfurt verður gist í þrjár nætur á góðu hóteli miðsvæðis í bænum. Kvöldverður á hóteli. Um 350 km.

14. ágúst – miðvikudagur. Wörtersee

Í Klagenfurt búa tæplega 100 þús manns. Í dag skoðum við okkur um í nágrenninu og kynnumst nánar Wörtersee þar sem m.a er hægt að fara í sólbað eða siglingu, eða skoða hinn skemmtilega Minimundus, sem er flottur garður með ótal litlum eftirlíkingum af byggingum og mannvirkjum úr öllum heiminum. Kvöldverður á hóteli.

15. ágúst – fimmtudagur. Bled í Slóveníu

Slóvenía, „litla fallega landið sólarmegin í Ölpunum“ er skammt undan. Ein þekktasta perla landsins er Bled vatn og munum við skreppa þangað í dag. Ökum, göngum, skoðum, njótum og fáum okkur kannski kaffi og köku við þetta dásamlega vatn áður en við höldum til baka. Kvöldverður á hóteli. Um 80 km til Bled. .

16. ágúst – föstudagur. Klagenfurt – Bad Gastein.

Í dag verður ferðinni haldið áfram og nú er kominn tími á dvöl á góðu fjallahóteli með slökun, dekri og útivist. Leiðin liggur til hins fallega og þekkta skíða- og sumardvalarstaðar Bad Gastein sem liggur í um 1000 m hæð. Sisi kaus að vera í Bad Gastein, því ekki við? Á svæðinu eru um 350 km af gönguleiðum af öllum gerðum, hjólaleiðir, golfvöllur, undursamlegt umhverfi, innisundlaug og spa á hóteli svo eitthvað sé nefnt. Gist hér næstu þrjár nætur. Ekkert stress! Kvöldverður á hóteli.

17. ágúst – laugardagur. Bad Gastein – gönguferð

Frjálst er í fjallasal! Njótum dagsins í Bad Gastein í faðmi fjalla og fallegrar náttúru. Boðið upp á gönguferð fyrir þá sem þess óska, ganga sem ætti að henta öllum því við veljum leiðir eftir getu hvers og eins. Kvöldverður á hóteli.

18. ágúst –sunnudagur. Bad Gastein – frjáls dagur

Þetta er dagur fyrir slökun og vellíðan. Nú eru allir búnir að kynnast bænum og nágrenninu og því getur hver og einn valið sér viðfangsefni, hvort sem það eru fleiri gönguferðir, golf, sund eða annað. Það er líka leyfilegt að vera í góðri leti og njóta þess að vera á góðu hóteli. Kvöldverður á hóteli.

19. ágúst – mánudagur. Bad Gastein – München

Eftir morgunverð kveðjum við litla bæinn og höldum til Þýskalands. München er höfuðstaður Bæjaralands (Bayern) og borgin er þekkt fyrir ýmislegt fleira en Októberfest, Derrick, fótbolta og BMW- bíla. Þar fæddist Sisi og borgin er ótrúlega skemmtileg. Boðið upp á stutta gönguferð um miðbæinn við komu, en síðan verður frjáls tími. Gist á notalegu hóteli í göngufjarlægð frá verslunargötunum og Marienplatz. Kvöldverður á eigin vegum, en fararstjóri mun benda á veitingastaði sé þess óskað. Um 230 km.

20. ágúst – þriðjudagur. Heimferð

Undir hádegi , að loknum góðum morgunverði, verður haldið út á flugvöll og flogið heim með Icelandair kl. 14:05 og áætluð lending á Íslandi er kl. 16:00, vonandi eftir mjög góða ferð!

Kort af svæðinu


View Fegurð Austurríkis in a larger map