Ferðskrifstofan Urval Utsyn

-

Skotland

  • Um ferðina
  • Gistingar
  • Bóka
  • Myndir
  • Fararstjóri
  • Verð og Innifalið
Scotland-Edinburgh-3.jpg
10. - 17.september 2013
Margir eru „alltaf á leiðinni“ til Skotlands til að kynnast þessu fallega og skemmtilega nágrannalandi okkar. Hér er einstakt tækifæri. Mikil saga, stórbrotin náttúra og magnaðir kastalar en auk þess sekkjapípur, skotapils og söfn, - vatnaskrímsli, whisky og verslanir. Hvarvetna er eitthvað sem vekur áhuga og athygli. Í þessari stórskemmtilegu vikuferð verður farið um nokkrar helstu perlur landsins, þar á meðal Glasgow og Edinborg með öllu því sem þær hafa uppá að bjóða, St. Andrews, elstu háskólaborg landsins, Scone Palace, þar sem ekki bara Macbeth heldur margir fleiri konungar voru krýndir og skosku hálöndin
Um ferðina

Man einhver eftir Urquhart kastala eða Skye eyju og eru ekki allir til í siglingu og skrímslaleit á Loch Ness eða að fara whisky verksmiðju? Þetta eru bara nokkur dæmi um það sem gestir upplifa og sjá í þessari skemmtilegu og fjölbreyttu Skotlandsferð. Gist verður á notalegum gististöðum í 1-2 nætur á hverjum stað.!

FERÐATILHÖGUN

10. september . Ísland – Glasgow - Edinborg

Flogið með Icelandair kl. 07:35 til Glasgow og lent þar kl. 10:40 að staðartíma. Byrjað verður á því að fara í skoðunarferð um Glasgow þar sem helstu kennileiti og byggingar verða kynntar. Meðal annars komið við í hinu fræga Kelvingrove Art Gallery, sem var opnað eftir gagngerar endurbætur árið 2006. Þar er að finna um 8000 gripi og málverk, meðal annars eftir marga heimskunna meistara. Síðdegis er haldið áfram til Edinborgar þar sem gist verður í tvær nætur.

11. september . Edinborg

Eftir morgunverð verður haldið í kynnisferð um Edinborg, hina fallegu og líflegu höfuðborg Skotlands, sem er á heimsminjalista UNESCO. Farið verður í kynnisferð um borgina þar sem við kynnumst helstu áhugaverðum stöðum, þ.á.m. Edinborgar kastala, sem gnæfir tilkomumikill yfir borginni. Síðdegis er frjáls tími til að skoða sig betur um, kíkja í búðir, gallerí, söfn eða á einhvern góðan „pub“ eða veitingastað.

12. september . St. Andrews – Scone Palace - Perth

Eftir morgunverð er haldið af stað og ekið verður til gamla, fallega bæjarins St. Andrews sem er þekktur fyrir samnefndan kastala, dst adómkirkjuna og elsta háskóla í Skotlandi. St. Andrews er einnig mjög þekkt fyrir golfmenninguna. Eftir hádegið er haldið áfram til Scone hallar, en þar voru skoskir konungarnir krýndir hér áður fyrr, þar á meðal Macbeth. Umhverfis höllina eru fallegir garðar og skóglendi. Ekið áfram til Perth þar sem verður gist í eina nótt.

13. september . Hálöndin – whisky - Inverness

Eftir morgunverð verður haldið af stað upp í skosku hálöndin. Fyrsta stoppið er í Pitlochry þar sem heimsótt verður áhugaverð whisky verksmiðja og gestir fræðast um leyndardóma þessa fræga skoska drykks og að sjálfsögðu fá þeir að smakka sem þess óska. Haldið áfram í áttina til Aviemore, en á fallegum stað þar skammt frá er Highland folk museum, vinsælt og lifandi safn sem hefur hlotið ýmsar viðurkenningar. Þar má kynnast lífi og starfi fólks í skosku hálöndunum í gegnum aldirnar. Hér er gaman að eyða smá tíma. Haldið áfram til Inverness sem er stjórnsýslumiðstöð samnefnds héraðs. Gist þar næstu nótt og kvöldverður innifalinn í dag.

14. september . Loch Ness – Fort William

Í dag er komið að því að fara í skrímslaleit! Eftir morgunverð er lagt af stað til Loch Ness. Farið verður í hálftíma siglingu á vatninu og á þessum slóðum eru eins og víðar óþrjótanleg myndaefni, t.d. af Urquhart kastala, sem er einn sá stærsti í Skotlandi. Haldið áfram og fleiri myndir væntanlega teknar í Fort Augustus við suðurenda vatnsins eða við Kaledóníuskurðinn. Í ferðamannabænum Fort William er miðstöð þeirra sem vilja klífa hæsta tind Bretlandseyja sem er þar skammt undan, Ben Nevis 1.344 m á hæð. Gist verður í tvær nætur á þessu svæði. Kvöldverður innifalinn.

15. september . Isle of Skye

Að loknum morgunverði er farið í dagsferð til Skye eyju, sem er stærsta eyja Skotlands. Siglt er frá Mallaig yfir til Armadale og þegar út á eyjuna er komið er ekið meðfram sjávarsíðunni til fiskimannabæjarins Portree. Við njótum dagsins í faðmi náttúrunnar og í nágrenni sjávar og seiðandi kletta og stoppum á völdum stöðum m.a. við Eilean Donan kastala sem er að margra mati erkitýpa skoskra kastala og sá kastali sem hvað oftast er ljósmyndaður í öllu landinu, jafnvel í heimi! Ekið til baka til Fort William síðdegis. Kvöldverður og gisting.

16. september . Loch Lomond - Glasgow

Haldið verður áfram í dag í suðurátt um sjarmerandi landið. Ekið gegnum Glencoe gljúfrið sem hefur áhugaverða sögu og áfram til hins fallega vatns Loch Lomond, sem er jafnframt stærsta vatn landsins. Þar er staldrað við áður en haldið verður áfram til Glasgow þar sem verður gist síðustu nóttina. Eftir komuna þangað gefst tími til að skoða sig aðeins um, versla eða annað sem hugurinn girnist.

17. september . Heimflug

Undir hádegi kemur rútan og ekur hópnum til flugvallar, en flogið verður heim með Icelandair kl. 14:05 og lent kl. 15:25.

Kort af svæðinu


View Skotland in a larger map