Notendaskilmálar Ferðaskrifstofu Íslands
Öll viðskipti um vefsíðu (hér vefur Úrvals-Útsýnar) Ferðaskrifstofu
Íslands ehf. sem skráð er í fyrirtækjaskrá og er með útgefið leyfi frá
Ferðamálastofu eru háð notenda- og samningsskilmálum (hér eftir
"skilmálar") sem hér koma fram.
Vefsíða í skilningi þessara skilmála skal teljast vera upplýsingar
sem dreift er á heimsvísu með Hyper Text Transfer Protocol (HTTP
staðli) um Transmission Control Protocol/Internet Protocol (TCP/IP)
netið, sem jafnframt er nefnt Internetið.
LESTU ÞESSA SKILMÁLA VANDLEGA ÁÐUR EN ÞÚ SKOÐAR ÞESSA VEFSÍÐU OG
SÉRSTAKLEGA ÁÐUR EN NOKKUR KAUP ERU GERÐ. ÞETTA ERU ÞEIR SKILMÁLAR SEM
GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ
GERA UM VEFSÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.
Ferðaskrifstofa Íslands ehf. heldur úti þessari vefsíðu og öðrum
vefsíðum sem eru tengdar þessarri vefsíðu og bera þess merki að vera
eign Ferðaskrifstofu Íslands ehf. (hér eftir sameiginlega "vefsíða") og
öllum upplýsingum, hugbúnaði, myndum, texta, tónlist, hljóðum, öllu
öðru efni og þjónustu sem veitt er á þessari vefsíðu (hér eftir
sameiginlega "efni") til afnota og aðgangs fyrir allan almenning, en
einungis í þeim lögmæta tilgangi sem lýst er hér að neðan. Vakin er
athygli á því að undir ofangreint fellur ekki sú þjónusta sem veitt er
af Amadeus Global Distribution System S.A. (hér eftir "Amadeus") á
vefsíðum Amadeus, eða annað sem þar kemur fram. Né heldur þjónusta sem
veit er af Gullivers Travel Associates (hér eftir ?GTA?) á vefsíðum
GTA, eða annað sem þar kemur fram.
SAMÞYKKI ÞESSARA SKILMÁLA; LÖGSAGA
Fyrir að fá aðgang að þessari vefsíðu samþykkir þú að vera bundin(n)
af þessum skilmálum og til að fara eftir öllum viðeigandi lögum og
reglum. Þú ábyrgist að hafa heimild að lögum til að samþykkja þessa
skilmála fyrir sjálfa(n) þig eða þann aðila sem þú kemur fram fyrir.
Verði einstök ákvæði skilmála þessa lýst ógild, ólögmæt eða eigi verður
unnt að leita fullnustu þeirra að einhverju leyti, skal það engin áhrif
hafa á gildi, lögmæti og fullnustumöguleika annarra ákvæða skilmálanna.
Hvers konar undantekningarnar og takmarkanir eiga aðeins við að því
marki sem íslensk lög heimila.
Einstaklingum yngri en 18 ára að aldri, er óheimilt að nýta sér
þjónustu Ferðaskrifstofu Íslands ehf á vefsíðum félagsins, án samþykkis
forráðamanns.
Þú ert vinsamlegast beðinn um að skoða ekki eða nota vefsíðuna ef þú samþykkir ekki þessa skilmála.
Þessari vefsíðu er haldið úti frá starfstöð Ferðaskrifstofu Íslands
ehf. á Íslandi. Með því að fara inn á vefsíðuna samþykkir þú að íslensk
lög gildi um vefsíðuna, efnið, aðgang þinn, skoðun og kaup á
vefsíðunni, sem og að varnarþing vegna ágreiningsmála sé Héraðsdómur
Reykjavíkur. Þeir sem fara inn á vefsíðuna og skoða það frá stöðum utan
Íslands gera það á eigin ábyrgð. Ferðaskrifstofa Íslands ehf. tekur
ekki ábyrgð á því að efni vefsíðunnar sé hæft til aðgangs eða notkunar
utan lögsögu Íslands og allur aðgangur frá ríkjum þar sem efni
vefsíðunnar er ólögmætt að einhverju leyti er bannaður. Þú samþykkir að
Ferðaskrifstofa Íslands ehf. eigi rétt á því að neita þér um aðgang að
vefsíðunni hvenær sem er, án nokkurs fyrirvara, sem og til að stöðva
tengingu þína eða aðgang að vefsíðunni.
SENDING UPPLÝSINGA, VINNSLA FERÐASKRIFSTOFU ÍSLANDS HF. Á
UPPLÝSINGUM SEM ÞÚ GEFUR OG ÁBYRGÐ Á ÞEIM UPPLÝSINGUM SEM
FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS EHF. GEFUR
Þú samþykkir að veita Ferðaskrifstofu Íslands ehf. fulla og
ótakmarkaða heimild til að nota allar þær upplýsingar sem þú sendir til
vefsíðunnar, án nokkurs endurgjalds, þó þannig að skráning eða notkun
upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi Ferðaskrifstofu Íslands
ehf. Þá skal Ferðaskrifstofu Íslands ehf. vera heimilt að nota slíkar
upplýsingar í markaðsstarfsemi félagsins. Skal tilkynning þessi um
slíka vinnslu persónuupplýsinga jafngilda viðvörun um slíka vinnslu.
Nánari upplýsingar um vinnubrögð, vinnuferli og annað sem lýtur að
vinnslu persónuupplýsinga fæst á skrifstofu Ferðaskrifstofu Íslands
ehf., nánar tiltekið:
Ferðaskrifstofa Íslands
Lágmúla 4
108
Reykjavík
Þér er óheimilt að senda til vefsíðunnar upplýsingar sem geta talist
ólögmætar eða fela í sér refsivert brot eða brot gegn einkaréttarlegum
hagsmunum.
Í upplýsingunum felst ekki sölutilboð eða leit eftir kauptilboðum í
nein verðbréf, og ekki ber að reiða sig á þessar upplýsingar í tengslum
við neins konar fjárfestingaráform.
Upplýsingarnar sem hér eru birtar hafa verið teknar saman af
Ferðaskrifstofu Íslands ehf. og eru sóttar til félagsins sjálfs og utan
þess. Engin ábyrgð er hins vegar tekin á því hvort upplýsingarnar séu
réttar eða tæmandi, enda engin yfirlýsing gefin um slíkt. Einkum ber að
gæta þess að upplýsingar þessar kunna að vera ófullkomnar, í þeim kunna
að leynast villur og þær kunna að hafa úrelst. Því er rétt að sannreyna
upplýsingar sem fengnar eru á þessari vefsíðu áður en ráðstafanir eru
gerðar á grundvelli þeirra með því að hafa samband við næstu skrifstofu
Ferðaskrifstofu Íslands ehf. eða umboðsaðila Ferðaskrifstofu Íslands
ehf., eftir því sem við á. Ferðaskrifstofa Íslands ehf. ber enga
bótaábyrgð vegna hvers kyns tjóns eða miska er kann að stafa af því að
aðgangur fékkst eða fékkst ekki að vefsíðu þessari eða vegna þess að
treyst var á einhverjar upplýsingar sem birtar eru á vefsíðu þessari.
TAKMÖRKUN Á NOTKUN ÞINNI Á VEFSÍÐU OG EFNI
Leyfilegur aðgangur þinn að vefsíðunni er bundinn við aðganginn sem
slíkan, skoðunar vefsíðunnar og til kaupa á vefsíðunni. Leyfilegur
aðgangur þinn nær ekki til annarrar notkunar á efni eða vefsíðu. Þér er
óheimilt að tengja vefsíðuna við aðra vefsíðu, eða gera vefsíðuna hluta
af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis Ferðaskrifstofu Íslands ehf.
Öll notkun hugbúnaðar er óheimil að öðru leyti en nauðsynleg er vegna
leyfilegra athafna þinna. Leyfi þitt fellur sjálfkrafa niður ef þú
brýtur einhver atriði þessara skilmála.
ENDURSKOÐUN
Ferðaskrifstofu Íslands ehf. er heimilt að endurskoða, breyta eða
fella út efni hvenær sem er án fyrirvara. Ferðaskrifstofa Ísland ehf.
getur hvenær sem er endurskoðað og breytt þessum samningsskilmálum. Með
samþykkt þessara skilmála samþykkir þú að vera bundin(n) af öllum
slíkum breytingum.
SÍÐUR SEM TENGDAR ERU VEFSÍÐUNNI OG ER EKKI HALDIÐ ÚTI AF FERÐASKRIFSTOFU ÍSLANDS EHF.
Ferðaskrifstofa Íslands ehf. tekur enga ábyrgð á þeim vefsíðum sem
tengdar eru vefsíðunni en er ekki haldið út af Ferðaskrifstofu Íslands
ehf. Ferðaskrifstofa Íslands ehf. ræður ekki efni eða fyrirkomulagi á
öðrum vefsíðum en sínum eigin og geta ekki borið ábyrgð á þeim eða
hverjum þeim viðskiptum sem kunna að vera gerð í gegnum slíkar síður.
KAUP Á VÖRUM OG ÞJÓNUSTU Á VEFSÍÐUM SAMSTARFSFYRIRTÆKJA FERÐASKRIFSTOFU ÍSLANDS EHF.
Í vissum tilfellum er eða verður hægt kaupa vörur og þjónustu á
vefsíðum samstarfsfyrirtækja Ferðaskrifstofu Íslands ehf. Um leið og þú
kaupir vörur og þjónustu með þeim hætti samþykkir þú að Ferðaskrifstofa
Íslands ehf. sendi þér tölvupóst með upplýsingum um framboð á vörum og
þjónustu hjá slíkum samstarfsfyrirtækjum Ferðaskrifstofu Íslands ehf.,
þó þannig að þú átt þess kost að óska eftir því að Ferðaskrifstofa
Íslands ehf. sendi þér ekki slíkan póst. Slíkum beiðnum skal komið á
framfæri á ofangreint heimilisfang. Þessi málsgrein notenda- og
samningsskilmála takmarkar ekki heimildir Ferðaskrifstofu Íslands ehf.
til að senda þér annan tölvupóst.
VÖRUMERKI O.FL.
Vörumerki, þjónustumerki og viðskiptaheiti sem birt eru á vefsíðu
þessari njóta verndar á Íslandi og alþjóðlega. Hvers kyns notkun þeirra
er óheimil nema að fenginni skriflegri heimild fyrirfram frá
Ferðaskrifstofu Íslands ehf. eða þeim samstarfsaðila sem um ræðir, nema
í þeim tilgangi einum að tilgreina vörur eða þjónustu fyrirtækisins.
FLUTNINGUR, ÖNNUR ÞJÓNUSTA OG VÖRUR
Flutningur farþega, farangurs og farms með flugi er háður
flutningaskilmálum viðkomandi flytjenda, sem í tilviki Ferðaskrifstofu
Íslands ehf. má kynna sér með því að hafa samband við
miðasöluskrifstofu eða sölustað Ferðaskrifstofu Íslands ehf. Önnur
þjónusta og vara sem lýst er á þessari vefsíðu er einnig háð skilmálum
og skilyrðum, en upplýsingar um slíka skilmála og skilyrði má nálgast
hjá viðkomandi söluaðila sem tilgreindur er á vefsíðunni. Jafnframt er
vakin athygli á því að þjónusta eða vara annarra aðila en
Ferðaskrifstofu Íslands ehf. sem boðin er á vefsíðu Amadeus eða GTA er
á ábyrgð viðkomandi aðila.