Skilmálar Ferðaskrifstofu Íslands

Hér á eftir fylgja ýmsar upplýsingar sem við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér.


Verð, verðbreytingar og skilmálar

Uppgefið verð er staðgreiðsluverð. Eftirtaldir þættir geta valdið breytingum á verði:

  • Flutningskostnaður, þar með talið eldsneytisverð.
  • Álagðir skattar eða sérgreiðslur fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld.
  • Gengi gjaldmiðla.
  • Skilmálar og viðskiptareglur greiðslukorta.

Við gætum þess vandlega að verðútreikningar sem birtast á vefsvæði okkar eða eru gefnir upp af starfsfólki séu ávallt réttir og endanlegir. Við áskiljum okkur þó rétt til leiðréttinga á verði eða endurgreiðslu ferðar í tilfellum þar sem rangt verð er gefið upp vegna villu í uppsetningu eða af öðrum tæknilegum ástæðum.

Við áskiljum okkur fullan rétt til leiðréttinga á villum í verði, texta og myndum, enda er allt efni vefsins birt með fyrirvara um villur.


Innifalið í verði pakkaferðar

Flug, gisting og íslensk fararstjórn.

Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að fella niður fararstjórn og ferðir til og frá flugvelli ef þátttaka er ónóg.


Ekki innifalið í verði pakkaferðar

Akstur erlendis (sjá verðskrá á hverjum áfangastað).


Greiðslukjör

Eftir að bókun hefur verið gerð m.v. að lágmark séu 5 vikur í brottför, hafa viðskiptavinir 7 daga til að draga ferðapöntun til baka gegn fullri endurgreiðslu, utan að haldið er eftir þjónustugjaldi, kr. 1.500 fyrir hverja bókun. Að þeim tíma liðnum er bókun bindandi.


Greiðsluskilmálar á netbókunum eru eftirfarandi

Greiða má heildarupphæð í einni greiðslu eða með greiðsludreifingu í 2, 3 eða 4 mánuði (eftir því hversu langt er í brottför)


Ef bókað er á söluskrifstofum

  • Greiða heildarupphæð.
  • Raðgreiðslur allt að 24 mán.
  • Boðgreiðslur, greiðsludreifing í 2, 3 eða 4 mánuði (eftir því hversu langt er í brottför). Kostnaður við boðgreiðslur er 3% á Visa og 3% á MasterCard.

Eftir að bókun hefur verið gerð hafa viðskiptavinir 7 daga til að draga ferðapöntun til baka gegn fullri endurgreiðslu. Að þeim tíma liðnum er bókun bindandi.


Raðgreiðslur

Semja má um greiðslukjör ferðarinnar ef svo ber undir. Raðgreiðsluform greiðslukortafyrirtækjanna henta best í þessum efnum. Mögulegt er að greiða ferðakostnað á raðgreiðslum til allt að 24 mánaða; þó má hver greiðsla ekki vera lægri en kr. 5.000. Sé ferð greidd með afborgunarkjörum bætist lántöku- og stimpilkostnaður (3,0-3,5%) við verðið, auk vaxta. Farþegar eru beðnir að passa upp á bókunarnúmerið sitt.


Afgreiðslugjald

Í samræmi við samþykkt Samtaka ferðaþjónustunnar greiðist þjónustugjald, kr. 3.500, fyrir hverja sérpöntun á þjónustu erlendis. Fyrir aðra þjónustu þegar ekki er keypt flug greiðist þjónustugjald, kr. 7.000. Bókunarfyrirvari er yfirleitt enginn.


Breytingargjald

Ferðapöntun er fastsett með greiðslu við pöntun. Ef farþegi óskar breytinga er breytingargjald kr. 7.000 fyrir hverja bókun. Til slíkra breytinga teljast m.a. breytingar á fjölda farþega á bókun, breyting á gististað, breyting á dagsetningum eða áfangastað. Breyting á dagsetningu ferðar með minna en mánaðar fyrirvara skoðast sem afpöntun og ný pöntun og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til greiðslu skv. því, sbr. afpöntunarskilmála.


Afpöntun og endurgreiðsla pakkaferða/ flugfarseðla

Sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð og lágmark 5 vikur eru í brottför, heldur ferðaskrifstofan eftir kr. 1.500 þjónustugjaldi á bókun.

Ferð afpöntuð meira en viku frá pöntun en þó 15 dögum fyrir brottför eða fyrr áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að halda eftir 50% af verði ferðar, þó aldrei lægri upphæð en kr. 24.000 á bókun.
Ferð afpöntuð 3-14 dögum fyrir brottför: Ferðaskrifstofan heldur eftir 75% af verði ferðarinnar.
Ferð afpöntuð minna en 3 virkum dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla.
Þegar reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra. Endurgreitt er inn á kreditkort ef greitt er með þeim.

Ef þátttakandi mætir ekki til brottfarar á réttum tíma eða getur ekki hafið ferðina vegna skorts á gildum ferðaskilríkjum, svo sem vegabréfi, áritun þess, vottorðs vegna ónæmisaðgerða eða af öðrum ástæðum, á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar.


Aflýsing og breytingar á ferðaáætlun

Vegna atburða og aðstæðna sem telja má ófyrirsjáanlega og þess eðlis að ferðaskrifstofan getur á engan hátt haft áhrif á atburðarás, né afleiðingar tengdum þeim, ber ferðaskrifstofan enga ábyrgð. Í slíkum tilvikum er ferðaskrifstofunni heimilt að breyta eða aflýsa ferðinni með öllu.

Geri ferðaskrifstofan breytingar á ferð áður en hún hefst skal tilkynna það farþega svo fljótt sem unnt er. Sé um verulega breytingu að ræða ber farþega að tilkynna ferðaskrifstofunni eins fljótt og unnt er hvort hann óski eftir að rifta samningnum eða gera viðbótasamning.

Sé ferð aflýst eða farþegi riftir samningi þegar um verulegar breytingar er að ræða á ferð áður en hún hefst, á farþegi rétt á að fá fulla endurgreiðslu eða taka í staðinn aðra ferð sambærilega að gæðum eða betri, ef ferðaskrifstofan getur boðið slík skipti.. Ef ferðin sem boðin er í staðinn er ódýrari fær farkaupi verðmismuninn endurgreiddannn. Ef ferðin er dýrari greiðir farkaupi mismuninn.

Tímasetningar sem gefnar eru upp við pöntun ferðar eru áætlaðar og geta breyst.

Ferðaskrifstofunni er heimilt að aflýsa ferð, ef í ljós kemur að þátttaka er ekki næg. Tilkynna ber þáttakendum um aflýsingu eigi síðar en þremur vikum fyrir áætlaðan brottfarardag. Ferðum er vara í eina viku eða skemur má aflýsa með tveggja vikna fyrirvara. Í leiguflugi miðast lágmarksþátttaka við að a.m.k. 65% nýting sé í viðkomandi flugvél, bæði á út- og heimflugi. Sé nýting tiltekinnar flugleiðar á ákveðnu tímabili (flugsería) að jafnaði undir 70% er ferðaskrifstofu heimilt að fella niður öll flug á tilteknu tímabili á þeirri flugleið (flugseríu), jafnvel þó lágmarksþátttaka hafi náðst í einstaka flugi. Í sérferðum gildir að lágmarksþátttaka er 20 manns nema annað sé sérstaklega tilgreint í auglýsingum eða sölubæklingum.

Alferðagjald

Greiða skal alferðargjald, kr. 500 fyrir hvern farþega sem bókaður er í alferð, sbr. lög um alferðir nr. 80/1994. Gjaldið er til þess að standa straum af aukakostnaði sem sérstaklega fellur til vegna slíkra bókana og er innifalið í verði ferðar.


Bókunargjald

Greiða skal bókunargjald, kr. 3.900 fyrir hvern farþega, ef bókað er á söluskrifstofu eða í þjónustusíma.


Forfallagjald/Sjálfsábyrgðargjald

Ferðaskrifstofan ráðleggur öllum sínum farþegum að verða sér úti um forfallatryggingu hjá tryggingafélagi. Ferðaskrifstofan býður viðskiptavinum sínum að greiða forfallagjald/sjálfsábyrgðargjald sem er kr. 3.500 og ekki innifalið í verði. Athugið að þetta gjald þarf að greiða í síðasta lagi viku frá bókun. Hafi þetta gjald verið innt af hendi endurgreiðir ferðaskrifstofan ferðakostnað komi til forfalla fyrir fyrirhugaða ferð af eftirtöldum orsökum:

  • Þátttakandi forfallast vegna líkamsmeiðsla af völdum slyss, veikinda, þungunar, barnsburðar eða sóttkvíar, enda vottað af hæfum, starfandi lækni.
  • Þátttakandi andast.
  • Ættingi eða náinn viðskiptafélagi þátttakanda andast eða hlýtur líkamsmeiðsl af völdum slyss, eða veikinda, vottað af hæfum, starfandi lækni.

Framangreind tilvik skulu vera þess eðlis að óhjákvæmilegt verði að afturkalla áður gerða pöntun. Skilyrði er að ferðaskrifstofu sé tilkynnt um forföll fyrir brottför. Sjálfsábyrgð er kr. 8.000. Sé ferð afturkölluð og falli undir ofangreindar orsakir er því kr. 3.500 forfallagjald, kr. 3.900 bókunargjald og sjálfsábyrgð að upphæð kr. 8.000 óafturkræft, samtals kr.15.400 á mann.

Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að kalla til sín trúnaðarlækni vegna einstakra tilfella.

Sé farþegi með forfallatryggingu hjá tryggingafélagi (t.d. greiðslukortatrygging) breytist þetta gjald í sjálfsábyrgðargjald, þ.e. farþegi fær greiddan þann kostnað sem hann annars fær ekki endurgreiddan af þeirri tryggingu sem hann er með hjá viðkomandi tryggingafélagi. Frádráttur af sjálfsábyrgðargjaldi er iðgjaldið auk aukakostnaðar og kostnaðar við greiðsludreifingu eigi það við.


Tryggingar

Ástæða er fyrir farþega að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í langferð. Sé ferð greidd með greiðslukorti a.m.k. að hálfu fylgir í flestum tilfellum með ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtækjunum. Athugið að þessar tryggingar eru afar mismunandi eftir tegund greiðslukorts, kynnið ykkur vel skilmála sem má fá í sérprentuðum bæklingum hjá útgefanda kortsins.


Veikindi eða slys erlendis

Kynntu þér vel bækling Tryggingastofnunar ríkisins "Veikindi eða slys á ferð erlendis - hvaða rétt átt þú?" Bæklinginn getur þú nálgast hjá Tryggingastofnun ríkisins.


Flugið

Upplýsingar um brottfarar- og komutíma flugvéla fást á textavarpi, bls. 420-421. Brottfarar- og flugtímar eru ætíð áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs, af tæknilegum, eða öðrum óviðráðanlegum orsökum. Ferðaskrifstofan ber hvorki ábyrgð né skaðabótaskyldu ef breytingar verða á flugi vegna þessa.


Brottför frá Íslandi

Í tengslum við allt flug bjóðast rútuferðir með Kynnisferðum frá BSÍ í Reykjavík. Farþegar skulu mæta á BSÍ um 3 klst. fyrir áætlaðan brottfarartíma flugs. Fargjald aðra leið kostar kr. 1.500 (janúar 2008). Einnig bjóðast rútuferðir frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar til Reykjavíkur í tengslum við komur flugvéla til landsins. Nánar á vef Kynnisferða.


Farangur

Upplýsingar um leyfilegan farangur í flugi fást á vef Leifsstöðvar.

Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á farangri í leiguflugi eða í öðrum farartækjum svo sem rútum og áætlunarbifreiðum. Verði skemmdir á farangri í flugvél ber farþega að fá skriflega skýrslu hjá þjónustuaðila flugfélagsins á viðkomandi flugvelli. Flugfélagið greiðir farþega bætur fyrir skemmdan farangur samkvæmt alþjóðlegum reglum og skulu bæturnar sóttar þangað. Hafi farþegi ekki látið gera tjónaskýrslu er ekki hægt að fá farangur bættan. Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á ef farangur tapast eða ef hann berst farþega seint.


Börn

Börn undir 2ja ára aldri fá ekki úthlutað sæti um borð í vélunum og skulu sitja hjá foreldrum eða umsjónarmanni. Farangur þeirra er innifalinn í leyfilegri farangursheimild foreldris eða umsjónarmanns.


Á áfangastað

Gistilýsingar byggjast að hluta á upplýsingum frá stjórn gististaðanna en að mestu á mati starfsfólks ferðaskrifstofunnar og miðast við stöðu mála í janúar 2008. Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á því ef aðbúnaður og þjónusta gististaðanna er tímabundið ekki til staðar sökum bilana eða endurnýjunar, t.d. ef loftkæling bilar eða sundlaug er lokuð vegna hreinsunar eða endurnýjunar.


Þrif

Þótt oftast sé vel staðið að þrifum á gististöðum ná þau í einstaka tilfellum ekki að standa undir kröfum farþega. Komi upp óánægja með þrif á vistarverum skal tafarlaust hafa samband við fararstjóra eða stjórnendur viðkomandi gististaðar. Upplýsingar um þrif á vistarverum er að finna í viðkomandi gistilýsingum.


Fæði

Fæði er aldrei innifalið í gistiverði á íbúðahótelum nema þess sé sérstaklega getið. Í hótellýsingum og/eða verðlista kemur fram hvort fæði er innifalið í verði.


Séróskir

Ferðaskrifstofan er umboðsaðili gististaða og hefur ekki yfirráð yfir gistirými. Yfirmenn gististaðanna sjá um niðurröðun farþega í herbergi/íbúðir. Starfsfólk ferðaskrifstofunnar getur ekki ábyrgst að séróskum farþega sé fullnægt umfram það sem getið er um í gistilýsingum og verðlista. Séróskum farþega verður þó að sjálfsögðu komið á framfæri við gististaði gegn greiðslu kr 1.000. Oftast má leigja barnarúm ytra og í slíkum tilfellum skal láta ferðaskrifstofuna vita eins fljótt og mögulegt er svo koma megi slíkum óskum á framfæri. Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir ósk um barnarúm en í mörgum tilfellum kemur til aukagreiðslu á gististað og skal yfirleitt greiða beint til gististaðar ytra.


Gististaðir

Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum í pöntunum. Örsjaldan kemur sú staða upp að gististaðir hafa ekki pláss fyrir alla þá viðskiptavini er eiga staðfestar pantanir. Gististaðir eru þá skyldugir til að útvega þeim viðskiptavinum, sem ekki fá inni, sambærilegan eða betri gististað. Þar sem ferðaskrifstofan er umboðsaðili ber hún ekki ábyrgð á yfirbókunum gististaða, en aðstoðar farþega að sjálfsögðu eftir föngum.

Í stúdíóum og íbúðum miðast eldhúsbúnaður við hámarks gestafjölda eins og getið er um í gistilýsingum.

Valdi gestir tjóni eða skemmdum á íbúð eða húsbúnaði ber þeim að gera það upp við hótel áður en dvöl lýkur.


Verðmæti

Við mælum eindregið með að viðskiptavinir geymi alls ekki peninga né önnur verðmæti á herbergjum eða í íbúðum, heldur noti öryggishólf sem bjóðast ýmist í gestamóttöku eða í vistarverum. Hvorki gististaðir né ferðaskrifstofan eru ábyrg ef verðmæti tapast úr vistarverum.

Á allflestum gististöðum gildir sú meginregla að gestir skuli hafa skilað herbergi/íbúð kl. 12 á hádegi á brottfarardegi (stundum kl. 10). Misjafnt er eftir gististöðum hvenær herbergi og íbúðir eru tilbúin til innritunar, en þó er miðað við tímabilið kl. 13 - 16. Sé í hópferðum brottför til flugvallar síðdegis eða að kvöldi til verða gerðar ráðstafanir til að fá afnot af aðstöðu þar sem farþegar geta geymt farangur og þeim tryggður aðgangur að hreinlætisaðstöðu.


Bílaleigur

Ferðaskrifstofan er umboðsaðili fyrir bílaleigur, en ber ekki ábyrgð á vanefndum eða mistökum slíkra fyrirtækja sem ekki hafa orðið vegna mistaka hjá ferðaskrifstofunni. Fáið upplýsingar hjá sölumönnum um lágmarksaldur ökumanns og hvaða takmarkanir eru á akstri milli landa. Athugið að leigutaki verður að hafa meðferðis kreditkort, skráð á sitt nafn og gilt ökuskírteini. Ekki er hægt að staðfesta ákveðna bílategund heldur er staðfestur flokkur, og tegundir bíla sem eru til innan hvers flokks geta breyst með litlum fyrirvara.

Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á ef bíll í staðfestum bílaflokki er ekki til. Það er á ábyrgð bílaleigu að leysa slíkt með því að láta leigutaka í té bíl í öðrum flokki án þess að hann beri aukakostnað. Áríðandi er að kynna sér vel hvað er innifalið í fyrirframgreiddu gjaldi fyrir bíl og hvernig tryggingamálum er háttað. Í sumum tilfellum eru í boði viðbótartryggingar sem leigutaki semur um kaup á beint við bílaleiguna og greiðir á staðnum. Áríðandi er að leigutaki viti að víða er ekki hægt að kaupa af sér alla sjálfsábyrgð, hann ber ábyrgð upp að vissri upphæð ef óhapp verður.

Nauðsynlegt er því að leigutaki skoði bílinn vel þegar hann tekur við honum og láti skrá t.d. ef einhverjar rispur sjást. Við mælum eindregið með að einhver frá bílaleigunni sé fenginn til að skoða bílinn þegar honum er skilað. Góð regla er að skila bíl fullum af bensíni (geymið kvittun fyrir bensíninu) þar sem það er oft töluvert dýrara að kaupa það hjá bílaleigunum ef ekki hefur verið valið að kaupa fullan tank fyrirfram. Leigudagur miðast við 24 tíma. Ef farið er 59 mín. fram yfir umsaminn leigutíma greiðist aukadagur á fullu verði. Þarna hefst nýtt leigutímabil sem leigutaki semur um beint við bílaleiguna á viðkomandi leigustað. Aðgætið vel hvað þið skrifið undir á leigusamningnum.


Skoðunarferðir

Þar sem fararstjórar eru staðsettir munu þeir leiða fjölbreyttar skoðunarferðir eins og þær eru kynntar hjá ferðaskrifstofunni. Nánari kynningu munu farþegar fá hjá fararstjóra á ákvörðunarstað. Þátttakendur í skoðunarferðum verða að skrá sig með nokkrum fyrirvara í ferðirnar svo panta megi rútu við hæfi. Sé þátttaka í einstökum ferðum lítil áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að fella viðkomandi ferð niður en í flestum tilfellum má bjóða svipaðar ferðir með erlendum fararstjórum. Ferðirnar skal ýmist gera upp í gjaldmiðli viðkomandi lands eða í íslenskum krónum. Í flestum tilfellum má greiða ferðirnar með greiðslukorti.


Vandamál

Komi af einhverjum ástæðum upp vandamál í ferðinni skal tafarlaust hafa samband við fararstjóra sem reynir að greiða úr hvers manns vanda. Þeir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa málið á staðnum. Ef það tekst ekki getur l farþeginn sent skriflega kvörtun um málið til ferðaskrifstofunnar í síðasta lagi innan mánaðar frá því að ferð lauk í samræmi við almenna ferðaskilmála Samtaka ferðaþjónustunnar. Nefnd sú er meðhöndlar og afgreiðir kvörtunarmál ferðaskrifstofunnar mun afla nauðsynlegra gagna, fá skýrslu frá fararstjóra og yfirfara málið. Þegar málið er afgreitt fær viðkomandi senda skriflega niðurstöðu. Ef farþegi kemur ekki kvörtun sinni á framfæri við fararstjóra meðan á ferð stendur, hefur hann fyrirgert rétti sínum til hugsanlegra bóta. Vinsamlegast athugið að til að athugasemdir farþega fái eðlilega afgreiðslu skulu þær lagðar fram skriflega á þennan hátt. Að öðrum kosti sér ferðaskrifstofan sér ekki fært að svara athugasemdum formlega.


Vegabréf og áritanir

Sjá vef Utanríkisráðuneytisins.


Tollfrjáls innflutningur

Sjá Vef Leifsstöðvar.


Breytingargjald og skilmálar fyrir ferðir í leiguflugi

Breytingagjald á pöntun á flugsæti eingöngu í leiguflugi er kr. 3.500 fyrir hverja breytingu. Ekki er unnt að breyta bókun ef minna en 3 dagar eru í brottför.

Börn að 2ja ára að aldri greiða kr. 7.000, auk kr. 650 öryggisgjalds, samtals kr. 7.650. Ef fargjald sem endurbókað er, er hærra en það fargjald sem upphaflega var bókað greiðir viðskiptavinurinn mismuninn. Ekki er hægt að breyta í lægra fargjald og fá mismun endurgreiddan. Bókunargjald er kr. 3.900 fyrir bókun sem er gerð í síma eða á söluskrifstofu.

Sölufulltrúi annast bókun flugs gegn greiðslu með greiðslukorti, peningum eða ávísunum. Óski farþegi eftir annari þjónustu en þeirri sem innifalin er í ferðinni greiðist fyrir hana sérstaklega kr. 1.000.

Golfferðir - skilmálar og upplýsingar

Bókanir

Öll verð eru miðuð við netbókanir. Ef bókað er gegnum síma eða tölvupóst leggst á bókunargjald, kr. 3.900 á farþega.

Þyngd farangurs

Flutningur fyrir golfsett er innifalinn í verðum í skipulögðum hópferðum. Í flugum okkar með Iceland Express má golfsettið vikta allt að 12 kíló. Þyngd farangurstösku má vera allt að 15 kíló eða samtals í heild 27 kíló fyrir bæði.

Lágmarksfjöldi

Til þess að golffararstjóri verði með í ferðinni þarf lágmarksþátttaka að vera 16 manns í hverri brottför.

Golf

Við hjá ÚÚ-golf tökum ekki ábyrgð á ástandi golfvalla vegna framkvæmda, veðurfars eða óviðráðanlegra aðstæðna. Hins vegar erum við stöðugt að reyna að fá upplýsingar um það hvenær framkvæmdir standa yfir á golfvöllunum (eins og að gata flatir o.s.frv.). Þær upplýsingar sem við öflum okkur um þessi mál verða kynntar reglulega hér á netsíðunni okkar.

Byrjendur og háforgjafarkylfingar

Það er almenn regla í golfi um allan heim að eingöngu þeir sem eru með golfforgjöf fái að spila alvöru golfvöll. En vegna þess að hér er um hópbókun að ræða, og golfklúbbarnir fengu loforð fyrir því að hópar á okkar vegum munu ekki tefja leik, höfum við fengið undanþágu frá þessari reglu. En hafa skal þó í huga að þeir sem eru algerir byrjendur og hafa lítið sem ekkert komið nálægt golfíþróttinni, eiga ekki erindi að spila á þessum völlum. Þess vegna áskilja ÚÚ-golf, golffararstjórar ÚÚ-golf og golfklúbbarnir erlendis sér rétt til að meta það hvort fólk kemst á vellina eða ekki.

Rástímar

Rástímar/leikdagar eru birtir á heimsíðu okkar um þeið og þeir liggja fyrir. Við höfum reynt eins og hægt er að fá rástíma með það í huga að viðskiptavinir okkar geti spilað meira en 18 holur á dag. Þegar um hópbókanir er að ræða eiga golfvellirnir rétt á þvi að breyta rástímunum fyrirvaralaust og þess vegna bera ÚÚ-golf enga ábyrgð á því. Við viljum þó taka fram að slíkt er mjög fátítt.

Rásröð

Það er hlutverk fararstjórans að gera sitt besta til þess að allir fái meðspilara sem þeir eru ánægðir með. Ef það er fólk í sömu ferð sem langar að spila saman alltaf eða dag og dag, þá endilega látið okkur vita með því að senda tölvupóst á golf@uu.is

Golf á frídögum

Þeir sem vilja panta golf á frídögum, fyrir brottför láti okkur vita á golf@uu.is. Ef farþegar vilja spila aukagolf þegar komið er út, bera þeir fulla ábyrgð á að panta það sjálfir. Golffararstjórar okkar geta ekki ábyrgst að hægt verði að fá aukagolf ef menn hafa ekki pantað það fyrirfram hér heima en að sjálfsögðu munu þeir hjálpa til ef hægt er.

Golf á öðrum völlum

ÚÚ-golf sér ekki um að panta rástíma á öðrum völlum en þeim sem tilheyra ferðunum. Þeir sem hafa hug á að leika aðra velli ættu að kynna sér hvaða daga þeir hafa þegar bókaða rástíma í ferðinni og panta tímanlega héðan að heiman.

Reglur fyrir ótakmarkað golf

1. a) Það þarf að taka það fram að þú/þið séuð í ÚÚ-golfferðahópnum.
b) Verður að sýna kvittun fyrir fyrstu 18 holunum sem þið höfðuð spilað fyrr um daginn.
2. Auka golf er ekki hægt að panta fyrirfram og fæst einungis ef það er laus rástími eftir fyrsta hring.
3. Auka golf þarf ekki að spila strax eftir fyrsta hring. Hægt er t.d. að fara af svæðinu og koma aftur seinna sama dag. Auka golf má vera eins margar holur og menn vilja/geta spila.
4. Á Alicante golf þarf að greiða 10 evrur til að fá að leika meira golf samdægurs. Innifalið í gjaldinu er golfbíll.
5. Þrátt fyrir auglýst ótakmarkað golf ber golfdeild ÚÚ ekki ábyrgð á því að aukagolf náist ekki af einhverjum ástæðum (t.d. ef rástími fyrri hrings gefur ekki svigrúm til þess).

Golfkennsla

Sérstakar golfkennsluferðir eru að öllu jöfnu í boði bæði vor og haust.
Í öðrum ferðum er nær undantekningarlaust hægt að fá kennslu annað hvort hjá fararstjóra ÚÚ eða viðkomandi kennara sem starfar á áfangastað. Ef það er áhugi fyrir slíku þá vinsamlega hafið samband tímanlega fyrir brottför og kannið hvað best er að gera.

Æfingasvæði

Það er aðeins misjafnar aðstæður sem áfangastaðir okkar bjóða til æfinga en við leitumst alltaf við að velja áfangastaði sem hafa góða æfingaaðstöðu til að æfa lengri högg, stuttspil og pútt.

Golfklæðnaður

Almennt er gerð krafa um klæðaburð, t.d. er bannað er að leika golf í gallabuxum, íþróttabuxum, stuttbuxum með teygju í mittið og stuttermabolum án kraga. Flestir vellir gera kröfu um að kylfingar séu í golfskóm á golfvöllunum en það er ekki sama krafa þegar fólk er á æfingasvæðinu.

Sendu fyrirspurn á golf@uu.is ef þú ert í vafa. Einnig getur flest starfsfólk golfverslana hér heima ráðlagt fólki í þessum efnum.

Að öðru leyti en hér greinir gilda Almennir Alferðaskilmálar Samtaka ferðaþjónustunnar.

Ferðaskrifstofa Íslands ehf.

Úrval Útsýn

Plúsferðir

Sumarferðir