Spánn - Albir

Albir er vinalegur smábær rétt við Benidorm.

Öll fjölskyldan tekur ástfóstri við þennan stað frá fyrsta degi. Aðdráttarafl bæj­arins er einstakt og sólríkt andrúmsloft heillar þá sem vilja eiga friðsæla daga.

Hér er auð­velt að njóta lífsins. Góð kaffihús, girni­legur matur, líflegar krár og verslanir - alltaf nóg við að vera. Ströndin á Albir er samblanda af sandi og steinvölum og hentar vel til sól- og sjóbaða. Fyrir þá atorkusömu er kjörið að ganga, skokka eða jafnvel renna sér á línuskautum á göng­u­stígn­um sem liggur meðfram ströndinni að hinu fallega þorpi Altea sem teygir sig frá sjónum og upp í hlíðarnar fyrir ofan.

Altea - Borg listamannins

Listamenn hafa hreiðrað um sig í Altea í auknum mæli á undan­förnum árum með sínar vinnu­stofur, enda umhverfið undur­fagurt. Selja þeir verk sín ýmist á torgi bæjarins eða í litlum versl­unum sem opnar eru fram eftir kvöldi. Í Altea er fjöldi góðra veitingastaða, skemmtilegir barir og kaffihús, allt á þetta sinn þátt í að gera andrúmsloftið líflegt og skemmtilegt.

Terra Mitica

Rétt ofan við Albir er Terra Mitica, nýr og glæsilegur fjölskyldu- og skemmtigarður. Í garðinum er fjöldi leiktækja, glæsilegra veitingastaða og hápunkturinn fyrir þá hugrökku er svo stórkostlegasti rússíbani Spánar.

Aqualandia er fallegur og tilkomumikill vatnsskemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Mundomar er sædýragarður með höfrunga- og sæljónasýningum.

 

Benidorm

Benidorm er öllum sóldýrkendum vel kunn enda einn vinsælasti áfangastaður sóldýrkandi Evrópubúa. Benidorm sameinar fjörugt strandlíf og víðfrægt næturlíf og þangað flykkist fólk til að njóta tilverunnar, hvílast og skemmta sér.

meira

Akstur til og frá flugvelli erlendis

Úrval Útsýn bjóða uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum. Ef ekki fæst næg þáttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

Viltu leigja bíl?

Úrval Útsýn hefur gert samning við bílaleiguna Centauro um hagstæð verð á bílaleigubílum. 
Traust og góð bílaleiga sem er ávallt með nýjustu bílana á markaðinum.
Smelltu hér til að skoða verð og bóka bílinn þinn.

Bílaleigja