Barcelona

EIN FALLEGASTA BORG EVRÓPU

Það er stíll yfir Barcelona sem margir telja fallegustu borg í Evrópu. Barcelona er heillandi heimsborg, iðandi af lífi og uppfull af menningu og listum, sögu og söfnum. Spánverjar hafa átt frábæra listamenn og þekktustu listasöfn Barcelona eru helguð Pablo Picasso og Joan Miró. Fallegar og sérstæðar byggingar arkitektsins Gaudís prýða borgina en þar ber hæst dómkirkjuna frægu La Sagrada Familia. Næturlífið í Barcelona spannar allt litrófið og er kröftugt og fjörmikið. Kaffihúsin, skemmtistaðirnir og flamenkóklúbbarnir í miðbænum iða af lífi. Gaman er að njóta t.a.m. kvöldsins í Spænska þorpinu (Poble Espanyol) á Montjuic-hæðinni, eða við Ólympíuhöfnina og á Maremagnum-svæðinu. Borg til að skoða, skemmta sér, snæða góðan mat og kaupa hátískuvörur á góðu verði. Borgin, sem heillar Íslendinga ár eftir ár - þig langar aftur til Barcelona. 


Miðborgin

Auðvelt er að rata um miðborg Barselónu. Gott er að hafa torgið Plaça de Catalunya (Katalóníutorg) sem miðpunkt, en fyrir neðan þetta stóra torg er elsti hluti borgarinnar. Þar er einnig að finna flest söfn borgarinnar og ýmsa sögufræga staði. Hinar frægu Las Ramblas/Les Rambles, eða Ramblan, eins og Íslendingar hafa kallað þessa helstu göngugötu miðbæjarins, liggja frá Katalóníutorgi niður að minnisvarðanum um Kólumbus sem stendur við höfnina

 

Fjölbreyttur og skemmtilegur miðbær

Þegar gengið er niður Römbluna frá Katalóníutorgi er hið rómantíska Gotneska hverfi (Barri Gòtic ) á vinstri hönd en á hægri hönd er Raval-hverfið (Barri del Raval). Frá Kólumbusarminnisvarðanum, í norðausturátt, liggur breiðgatan Passeig de Colom. Úti við ströndina, handan smábátahafnarinnar og Maremàgnum-svæðisins er síðan síðan Passeig Marítim, samhliða Barceloneta-ströndinni, en í suðvesturátt frá Kólumbusarstyttunni liggur breiðgatan Paral.lel að torginu Plaça d´Espanya (Spánartorgi)
 

 

Arkitektúr frá 19.öld

Hægra megin við höfnina, þegar horft er til hafs, rís Montjuïc-fell, en að baki borginni er svo Tibidabo-fjall og fjallgarður baklandsins. Fyrir ofan Katalóníutorg og upp að Diagonal-breiðgötunni liggur hið fræga Eixample-hverfi, sem reist var eftir skipulagi arkitektsins Cerdá á 19. öld í þeim tilgangi að víkka Barselónu út og sameina hana nálægum þorpum sem nú teljast hluti af borginni sjálfri.

 

 

Þrátt fyrir þetta hafa þessi þorp, eins og t.d. Gràcia og Les Corts, varðveitt sögu sína og sérkenni. Aðalgata Eixample-hverfisins heitir Passeig de Gràcia en við hana standa tvö hús eftir Gaudí. Passeig de Gràcia nær alveg upp að Diagonal-breiðgötunni sem þversker alla borgina.