Bridgemót á Madeira 2.-9.nóv 2009.

Flogið er til London með Iceland Express sunnudaginn 1. nóvember. Brottför er áætluð kl.14:20 og áætluð lending kl. 17:20.
Gist um nóttina á hótel Crown Plaza við Gatwick flugvöll. Flogið áfram næsta dag með EasyJet til Madeira. Brottför kl. 07.10 – lending 10:55. Flugið er ekki innifalið og þarf að greiða sérstaklega.

Tekið á móti hópnum á flugvelli og ekið á hótel CS Madeira, þar sem gist er í 7 nætur.
9.nóvember flogið frá MADEIRA til STANSTEAD með EasyJet. Brottför kl. 11:35 15:25. (Þarf líka að greiða sérstaklega).

Verð á mann: 
Tvíbýli:  151.600 kr.
Einbýli:  199.790 kr.


INNIFALIÐ : Flug til og frá London, gisting með morgunverði í eina nótt við Gatwick og í 7 nætur með morgunverði á hótel CS Madeira. Akstur til og frá flugvelli á Madeira, bridge mótið, fordrykkur í upphafi móts, 2 kvöldverðir og hálfs dags skoðunarferð. Þeir, sem ekki spila bridds (hugsanlega makar)  fá endurgreiddar 18.300 kr., sem er þáttökugjald í mótinu sjálfu og er þá merkt við á þáttökulista að þeir taki ekki þátt í mótinu.

EKKI INNIFALIÐ: Flug með EASYJET milli London og Madeira.  Farþegar hringja í sölumenn hjá Úrvali Útsýn, sími 585 4000, sem bóka flugin gegn 3,900 króna bókunargjaldi á mann.
02.nov GATWICK-MADEIRA með Easy jet kl. 07.10 – lending 10:55
09.nov  MADEIRA-STANSTEAD  11:35 15:25

Verð á flugsætum á þessari leið er um 240 sterlingspund, eða um 49.000 krónur á mann
+ 3.900 króna bókunargjald á bókun

Flugverð í bókunarkerfi EasyJet breytist án fyrivara þannig að hver og einn þarf að greiða það verð, sem kemur upp við bókun. Gefa þarf upp kortanúmer við bókun og er miðinn óendurkræfur. Einnig þarf hver og einn að gefa um vegabréfsnúmer, útgáfudag og hvenær rennur út.

Bókaðu hér

Paradísareyjan Madeira

Madeira er gjarnan kölluð eyja hins eilífa vors eða garðurinn fljótandi, sem segir margt um veðurfarið og gróðursældina á þessari eldfjallaeyju. Lega eyjunnar í Atlantshafinu, miðja vegu milli Marokkó og Tenerife, þýðir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring.

En til Madeira er margt fleira að sækja annað en gróður og gott veður, því landslagið er ægifagurt. Upp úr fjölskrúðugum gróðrinum rísa tignarleg fjöll og klettar, sem er í mörgum tilfellum auðvelt að komast upp á, t.d. með kláf. Sem dæmi má nefna að útsýnið frá tindi Pico de Arieiro (1.818mys) er ógleymanlegt, ekki síst við sólsetur og á stjörnubjörtum nóttum.

Eitt af því sem kemur skemmtilega á óvart er samsetning íbúa er breytileg - þú ert ekki síst meðal heimafólks og færð mannlífið og fjölbreytta menninguna beint í æð. Heimamenn eru fullir krafts og ófáir sem smitast af lífsgleði þeirra.

Funchal

Höfuðborgin, Funchal, er heillandi bær í nýlendustíl, með ríka menningarsögu. Það er sérlega gaman að ganga um gamla bæinn, andrúmsloftið og stemningin eru mögnuð, ódýr og góður ekta portúgalskur matur, skemmtilegar handverksbúðir og götukaffihús.

Við höfnina eru fjölmargir veitingastaðir sem bjóða ljúffenga sjávarrétti og á markaðnum er hægt að kaupa framandi ávexti og óteljandi blóm. Í fjölmörgum glæsilegum grasagörðum er að finna orkídeur, kaktusa og hin víðfrægu drekatré.

Fjölmargt að gera

Madeira er um margt vel fallin til göngu. Mjög vinsælt er t.d. að ganga með áveituskurðunum levadas, sem liggja víða og telja rúma tvo þúsund kílómetra, tengja saman þorp og veita vatni langt inn í dali. Þetta eru ekki erfiðar göngur en landslagið oft frábært. Fyrir þá sem vilja leggja aðeins á sig er einnig er vinsælt að ganga á fjöllin, en útsýnið frá þeim er oft óviðjafnanlegt.

Tveir golfvellir eru á eyjunni og segir ýmislegt um gæði þeirra að þar er leikið í Evrópumótaröðinni.

Það er ekki mikið um náttúrulegar sandstrendur á Madeira, en víða er manngerð aðstaða við sjóinn auk þess sem sundlaugagarðar hótelanna ná gjarnan alveg niður að sjó svo það er auðvelt að njóta lífsins og flatmaga í sólinni.

Fyrir þá ævintýragjörnu er m.a. hægt að prófa siglingar, sjóstangveiði, hvalaskoðun, vatnaskíði, brimbretti og köfun. Að auki eru skemmtigarðar, t.d. vatnagarður.

Barir, diskótek og næturklúbbar spilavíti og kabarettsýningar sjá svo til þess að engum þarf að leiðast þegar skyggja tekur.

Matur og vín

Maturinn á Madeira er einfaldur en ljúffengur og kemur skemmtilega á óvart og að sjálfsögðu ætti enginn svo að láta hjá líða að heimsækja víngerð, grafast fyrir um leyndarmálið á bak við madeira vínið og grípa flösku til að taka með sér heim.
Bókaðu hér