Portúgal

Portúgal

Vinsælasti áfangastaður okkar frá upphafi og ekki að ástæðulausu

Við fljúgum til Portúgals vikulega í sumar (10. júní - 29. júlí)


Í Portúgal mætast gamli og nýi tíminn og mynda heillandi veröld. Það er eitthvað ósnortið við Portúgal, landið og þjóðina sem þar býr - eitthvað sem erfitt er að útskýra eða festa hendur á.

Portúgal er land andstæðna sem býr yfir óendanlegum tilbrigðum lífs og listar. Það er land skuggsælla skóga, öldusorfinna kletta, sólgylltra stranda og hvítkalkaðra húsa. Land þar sem virðulegir kastalar, þöglar kirkjur og syngjandi vindmyllur standa eins og þær hafi orðið viðskila við nútímann.

Þær eru ekki margar sólarstrendurnar í Suður-Evrópu þar sem sólþyrstir íbúar norðurálfu geta flatmagað innan um geðþekka trillukarla sem dytta að netum sínum og bátum. Þetta er upplifun þeirra sem koma til Albufeira, gamla fiskimannabæjarins sem hefur verið heimavöllur Úrvals-Útsýnar í Algarve undanfarin ár. Ofan við ströndina blasir við töfrandi ævintýramynd þar sem hvítkalkaðar byggingar, sumar með márísku yfirbragði, tylla sér á klettasyllur meðfram tæru Atlantshafi. Í sólarhéraðinu Algarve er einnig ósnortin náttúra og heillandi menning og hvarvetna mætir ferðamönnum portúgölsk hlýja og gestrisni. Gististaðir okkar eru í algerum sérflokki enda telst margt af því sem þykir sjálfsagt í Algarve munaður á öðrum sólarstöðum.


Albufeira

Albufeira, þessi gamli fiskimannabær, er orðinn einn af þekktari ferðamannastöðum í Algarve héraði og ekki að ástæðulausu. Þar sem áður fyrr var lítill og snotur bær þar sem sjómenn réru til fiskjar og dyttuðu að netum sínum, hefur vaxið upp nútímalegur og líflegur ferðamannabær.

Í bænum eru tveir kjarnar, annars vegar gamli bærinn við fiskimannaströndina og hins vegar Laugavegurinn, sem enskumælandi kalla The Strip.

Gamli bærinn státar af kirkjum bæjarins og öllum elstu byggingunum. Bæjartorgið iðar af mannlífi með úrvali af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Í hinum þröngu götum út frá torginu má finna margar skemmtilegar sérverslanir sem taka vel á móti ferðamönnum. Á sumrin koma stundum hljómsveitir og látbragðsleikarar, sem troða upp gestum og gangandi til skemmtunar.

Laugavegurinn er í hinum enda bæjarins, þó er ekki svo langt á milli. Í hinum enda bæjarins er Laugavegurinn - The Strip. Þar standa í röðum veitingastaðir, ísbúðir, kaffihús, og verslanir af öllu hugsanlegu tagi. Neðst við Laugaveginn, næsta Oura ströndinni eru diskóbarirnir með miklu fjöri, stundum langt fram á nótt.

Næturlífið á Laugaveginum er rífandi skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Úrval Útsýn hefur hlotið æðstu viðurkenningu stjórnvalda í Algarve-héraði fyrir brautryðjendastarf í sólarlandaferðum til Portúgals og þátt ferðaskrifstofunnar í uppbyggingu ferðamannaþjónustu héraðsins.

Olhos d'Agua

Ferðamannabær, um 5 km austan við Albufeira, sem hefur byggst hratt upp undanfarin ár.

Þar má finna verslanir, bari, kaffihús og veitingastaði í litlum, þröngum götum niður að ströndinni, sem líka heitir Olhos de Agua. Brekka liggur niður á ströndina.

Líflegt er í bænum bæði á daginn og fram á kvöld og úrval veitingastaða. Til að sækja diskótek þarf að fara til Albufeira.

Til vesturs taka við strendurnar Maria Luisa og Sta Eulalia, en til austurs teygir Falesia ströndin sig alla leið til bæjarins Vilamoura. Falesia ströndin er ein besta strönd Portúgals, hvít, breið og 7 km löng.

Golf á Portúgal

Algarve er paradís kylfinga. Vallargjöld fyrir 18 holur eru frá 45 Evrum en verð er mismunandi eftir gæðum golfvalla.

Meira um Portúgal

Albufeira

Golf í Algarve