Tenerife
FEGURST ALLRA Á KANARÍ!
Tenerife er sannkölluð paradís fyrir vandláta
ferðalanga. Eyjan tilheyrir Kanaríeyjaklasanum
en nýtur afgerandi sérstöðu
fyrir einstakt
náttúrufar og veðursæld,
hreinleika og frábæran
aðbúnað.
Á eyjunni miðri rís hið tignarlega Pico
del Teide 3.718 metra upp úr Atlantshafinu —
hæsta fjall Spánar.
Úrval Útsýn býður upp á vinsælustu
ferðamannabæina á suðurhluta
Tenerife; Playa
de las Américas og Costa Adeje.
SPENNANDI AFÞREYING Í BOÐI
Á daginn þarf enginn að láta sér leiðast, enda
nóg við að vera fyrir unga jafnt sem aldna. Til
að mynda er stærsta go–kart braut Evrópu og
motor–cross braut, rétt fyrir utan bæina. Allir
verða að heimsækja einn glæsilegasta
vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park.
Glæsilegar rennibrautir og fjölbreytt afþreying
þar sem þú getur m.a. rennt þér niður 28 metra
rennibraut í nánast frjálsu falli sem endar með
ferð í gegnum hákarlabúr! Á ströndinni
er mikið
úrval vatnaíþrótta
— sjóskíði, bananabátar,
siglingar og köfun við nánast hverja strönd.
Hægt er að gera sérlega góð kaup í verslunarmiðstöðvum
undir berum himni eða fara á
útimarkaði í spænska bænum
Los
Cristianos eða á Costa Adeje.
EINSTAKT NÁTTÚRUFAR
Tenerife er fögur og heillandi og hefur Margt að bjóða. Eyjan er sú stærsta af Kanaríeyjunum, og sker sig úr fyrir einstakt náttúrufar og veðursæld, hreinleika og góðan aðbúnað.
Tenerife er ein af sjö eyjum og liggur um 300 km út af ströndum Afríku. Tindurinn Teide, hæsta fjall Spánar, rís á miðri eyjunni og veldur því að loftslag er mismunandi á norður- og suðurhlutanum.
Norðanmegin er náttúran fjölbreyttari og gróðursælli, stórir furuskógar, bananaplantekrur og mikið blómahaf. Þar er Loro Parque dýragarðurinn sem hýsir eitt stærsta safn heims af páfagaukum og mörgæsum, "fiskabúr" yfir 3.000 tegundir sjávardýra, tígrisdýr, górillu og krókódíla frá Afríku.
ÚRVALS GISTINGAR Á HAGKVÆMU VERÐI
Í suðurhlutanum þar sem við erum með okkar gististaði, skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Meðalhiti er 20-22°C en á svalari dögum fer hitinn vart undir 15°C og fer sjaldan yfir 30°C.
Santa Cruz er höfuðborgin og telur liðlega 225.000 íbúa. Borgin er gróðursæl og iðar af lífi. Kaffihús, veitingastaðir, göngugötur og fjölmargar verslanamiðstöðvar gera heimsókn til borgarinnar notalega og umfram allt skemmtilega.