Tenerife

Fegurst allra á Kanarí

Tenerife er fögur og heillandi og hefur margt að bjóða. Eyjan er sú stærsta af Kanaríeyjunum, og sker sig úr fyrir einstakt náttúrufar og veðursæld, hreinleika og góðan aðbúnað.

Tenerife er ein af sjö eyjum og liggur um 300 km út af ströndum Afríku. Tindurinn Teide, hæsta fjall Spánar, rís á miðri eyjunni og veldur því að loftslag er mismunandi á norður- og suðurhlutanum.

Norðanmegin er náttúran fjölbreyttari og gróðursælli, stórir furuskógar, bananaplantekrur og mikið blómahaf. Þar er Loro Parque dýragarðurinn sem hýsir eitt stærsta safn heims af páfagaukum og mörgæsum, "fiskabúr" yfir 3.000 tegundir sjávardýra, tígrisdýr, górillu og krókódíla frá Afríku.

Í suðurhlutanum þar sem við erum með okkar gististaði, skín sólin nánast alla daga ársins og þar er vinsælast að vera. Meðalhiti er 20-22°C en á svalari dögum fer hitinn vart undir 15°C og fer sjaldan yfir 30°C.

Santa Cruz er höfuðborgin og telur liðlega 225.000 íbúa. Borgin er gróðursæl og iðar af lífi. Kaffihús, veitingastaðir, göngugötur og fjölmargar verslanamiðstöðvar gera heimsókn til borgarinnar notalega og umfram allt skemmtilega.

Playa de las Americas

Vinsælustu ferðamannabæirnir syðst á eyjunni eru Playa de las Americas og Costa Adeje, okkar staðir á Tenerife.

meira

 

Siam park

Allir verða að heimsækja einn glæsilegasta vatnsrennibrautagarð Evrópu, Siam Park. Glæsilegar rennibrautir og fjölbreytt afþreying þar sem þú getur m.a. rennt þér niður 28 metra rennibraut í nánast frjálsu falli og endar með ferð gegnum hákarlabúr!

meira

Golf á Tenerife

Arsenal - Fulham
7.-14. febrúar 2012

Verð á mann í tvíbýli með hálfu fæði frá:
219.900 kr.
Bóka ferð >>

Golf á Tenerife

Arsenal - Fulham
7.-21. febrúar 2012

Verð á mann í tvíbýli með hálfu fæði frá:
299.900 kr.

Bóka ferð >>

Golf á Tenerife

Arsenal - Fulham
14.-21. febrúar 2012

Verð á mann í tvíbýli með hálfu fæði frá:
219.900 kr.

Bóka ferð >>