Algengar spurningar og svör við þeim

Finnir þú ekki svarið við þinni spurningu hér að neðan geturðu sent okkur tölvupóst.

Mun flugáætlun standast?

Brottfarar- og flugtímar eru ætíð áætlaðir og háðir breytingum vegna veðurs, af tæknilegum, eða öðrum óviðráðanlegum orsökum

Hvernig flugvél mun ég fljúga með?

Upplýsingar um flugkost okkar

Er hægt að nota MasterCard ferðaávísun hjá ykkur?

Já, og hér finnurðu leiðbeiningar um hvernig það fer fram

Er hægt að panta flug aðra leið?

Já, það er hægt bóka flug aðra leið á öllum áfangastöðum okkar í leiguflugi

Hverju þarf ég að framvísa við innritun í flug?

Við innritun í flug nægir að hafa bókunarnúmer og vegabréf allra farþega, en það er betra að hafa útprentaða bókun við höndina

Hvað geri ég ef farangur skemmist eða týnist í flugi?

Flugfélagið sem sér um flugið ber ábyrgð á að koma farangri farþega til skila, svo það er fljótlegast að snúa sér beint til flugfélagsins. Hér finnurðu leiðbeiningar um hvert þú átt að snúa þér ef farangur skemmist eða týnist í flugi á okkar vegum

Hvernig fæ ég besta verðið?

Ódýrustu sætin bókast fyrst! Því fyrr sem þú bókar, því betra verð færðu

Hvaða greiðslukjör eru í boði?

Við bjóðum fjölbreyttar og þægilegar leiðir til að greiða fyrir ferðir

Hvernig bóka ég ferð?

Leiðbeiningar um hvernig þú bókar ferð með okkur