Ferðaskrifstofuna Úrval Útsýn í núverandi mynd má rekja til sameiningu ferðaskrifstofanna Úrvals og Útsýnar árið 1989. Árið 1956 var ferðaskrifstofan Útsýn stofnuð en ferðaskrifstofan Úrval var stofnuð árið 1970.
Síðar keypti Úrval Útsýn Ferðaskrifstofu Íslands þannig að með réttu má rekja söguna alla leið aftur til ársins 1936 þegar Ferðaskrifstofa ríkisins var stofnuð. Því má með sanni segja að saga ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar sé samofin ferðalögum Íslendinga til útlanda frá fyrstu tíð.
Í dag byggir ferðaskrifstofan svo sannarlega á þeirri reynslu og hefð sem safnast hefur saman í gegn um árin. Starfsfólk ferðaskrifstofunnar hefur dýrmæta reynslu í skipulagningu ferða um allan heim en skrifstofan hefur á að skipa einvalaliði sem tekur vel á móti þér. Það er keppikefli okkar að bjóða upp á fjölbreytta og faglega þjónustu á öllum sviðum, því ferðin þín skiptir okkur miklu máli. Þú átt leið til okkar hvort sem förinni er heitið á tölvusýningu í Birmingham, í skemmtisiglingu um Karíbahaf, að sjá Liverpool etja kappi við Chelsea á Brúnni, á fund fyrir fyrirtækið til Asíu eða með fjölskylduna í afslöppun í sólina svo eitthvað sé nefnt.
Sérfræðingar okkar munu kappkosta við að finna hagstæðustu og þægilegustu ferðina fyrir þig. Ferðavenjur Íslendinga hafa breyst mikið í gegn um tíðina og stöðug þróun ávallt í gangi. Það lítur út fyrir að það verði engin breyting á því í ár. Með stolti bjóðum við upp á spennandi nýjungar í bland við staði sem Íslendingar þekkja vel og hafa notið vinsælda í mörg ár.
Lágmúla 4 105 reykjavík Sími: 585 4000 Fax: 585 4065 Netfang: info@urvalutsyn.is