Ferðskrifstofan Urval Utsyn

Hópar

Vinnuhópar, félagasamtök, útskriftarhópar, saumaklúbbar eða fjölskylda sem vill ferðast saman hvort heldur sem um er að ræða ferð í sólina eða borgarferð. Úrval Útsýn tekur að sér að skipuleggja slíkar ferðir og gera tilboð fyrir stóra og smáa hópa.

Vinsælustu ferðirnar fyrir hópa eru eflaust borgarferðir á haustin og í auknum mæli eru hópar að fara í ferðir á vorin.

Fjölbreytt úrval okkar af slíkum ferðum hefur gert heilu fyrirtækjunum kleift að komast til áfangstaða sem annars eru ekki í alfaraleið.

Má þar nefna borgir eins og Brighton og Dublin svo eitthvað sé nefnt.

Skólahópar fara í ferð að prófum loknum og halda upp á þann áfanga á erlendri grund. Við tökum að okkur allar tegundir af skólahópum í allskonar ferðir.

Fyrirspurnir

Ertu að skipuleggja ferð fyrir 11 eða fleiri? Við finnum ferð fyrir hópinn, hvort sem leiðin liggur í borgarferð, sérferð, sólarlandaferð, styttri eða lengri ferðir til Evrópu eða Ameríku.

Sem sérfræðingar í hópferðum getum við verið lykilinn að vel heppnaðri ferð fyrir þinn hóp.

Vinsamlega sendið fyrirspurnir á netfangið hopar@uu.is