Allar ferðir

Öll fjölskyldan tekur ástfóstri við þennan stað frá fyrsta degi. Aðdráttarafl bæj­arins er einstakt og sólríkt andrúmsloft sem heillar þá sem vilja eiga friðsæla daga. Hér er auðvelt að njóta lífsins - Góð kaffihús, girnilegur matur, líflegar krár, verslanir og alltaf nóg við að vera.

Ströndin í Albír er sambland af sandi og steinvölum og hentar vel til sól- og sjóbaða. Fyrir þá atorkusömu er kjörið að ganga, skokka eða jafnvel renna sér á línuskautum á göng­u­stígn­um sem liggur meðfram ströndinni að hinu fallega þorpi Altea sem teygir sig frá sjónum og upp í hlíðarnar fyrir ofan. Albír er á Costa Blanca ströndinni, í 50 km fjarlægð frá Alicante og skammt frá Benidorm. 

Albír og Altea

FJÖLSKYLDU- OG SKEMMTIGARÐAR

Rétt ofan við Albir er glæsilegi fjölskyldu- og skemmtigarðurinn Terra Mitica. Í garðinum er fjöldi leiktækja og glæsilegra veitingastaða. Hápunkturinn fyrir þá hugrökku er svo stórkostlegasti rússíbani Spánar.
Aqualandia er fallegur og tilkomumikill vatnsskemmtigarður fyrir alla fjölskylduna og Mundomar er sædýragarður með höfrunga- og sæljónasýningum.

ALTEA – BÆR LISTAMANNSINS

Altea er fallegur listamannabær í héraði Alicante og tilheyrir það Costa Blanca svæðinu. Bærinn er einstaklega heillandi  með sínum hvítu húsum og auðvelt að falla fyrir sjarmanum sem hann hefur upp á að bjóða. Á undanförnum árum hafa listamenn í auknum mæli hreiðrað um sig í Altea, enda umhverfið undur­fagurt. Selja þeir verk sín ýmist á torgi bæjarins eða í litlum versl­unum sem opnar eru fram eftir kvöldi. Í Altea er fjöldi góðra veitingastaða, skemmtilegir barir og kaffihús og allt á þetta sinn þátt í að gera andrúmsloftið líflegt og skemmtilegt.

Gistingar í boði á Albír og Altea

Sæki gistingar...