Allar ferðir

Madeira er gjarnan kölluð Eyja hins eilífa vors eða Hinn fljótandi skrautgarður sem segir margt um milt veðurfarið og gróðursældina á þessari eldfjallaeyju. Í boði er gisting á úrvals hótelum og geta gestir slakað á og notið sólar og sjávar steinsnar frá skemmtilegri borg og/eða tekið þátt í fjölbreyttum kynnisferðum.

Íslensk fararstjórn er á staðnum.

Lega eyjunnar í Atlantshafinu tryggir að veðurfarið er þægilegt, milt og stöðugt árið um kring. Landslagið er ægifagurt, tignarleg fjöll, klettar, djúpir dalir  og fjölskrúðugur gróður milli fjalls og fjöru. Sykurreyr, vín- og bananaekrur setja svip sinn á landið auk fjölda skrúðgarða. Gamalt áveitukerfi er enn gulls ígildi og mikil völundarsmíð. Um alla eyju eru afar skemmtilegar gönguleiðir.

Madeira

Madeira tilheyrir Portúgal en er með sjálfstjórn og eigið þing.  Eyjan er um 740 ferkílómetrar að stærð og íbúar um 300 þúsund. Fólkið er einstaklega vingjarnlegt og auk portúgölsku tala mjög margir ensku. Ekki er mikið um stórar sandstrendur á eyjunni, víðast hvar eru klettastrendur og fallegar víkur. Þó má finna manngerðar sandstrendur með gullnum sandi.

Höfuðborgin Funchal

Við suðurströndina er höfuðborgin Funchal, heillandi bær í nýlendustíl með ríka menningarsögu. Gamli bærinn er einstaklega fallegur. Þar eru ódýr og góð portúgölsk veitingahús, fjölbreyttir markaðir, glæsilegar handverksbúðir og fjöldi kaffihúsa. Höfnin er sjarmerandi og gaman að rölta meðfram sjónum og fylgjast m.a. með hinum mörgu skemmtiferðarskipum sem þangað koma. Fallegir garðar prýða bæinn eins og alla eyjuna. 

Madeira

Lido ferðamannasvæðið

Fyrir vestan Funchal hefur byggst upp heilmikið ferðamannasvæði, Lido, þar sem eru fjölmörg hótel, veitingastaðir, verslanir og önnur þjónusta fyrir ferðamenn.  Meðfram sjónum er göngustígur og á stöku stað hafa verið búnar til litlar sandstrendur eða önnur baðaðstaða fyrir unnendur sjávar. Einnig er alls konar sjávarsport í boði. Til að komast inn í Funchal, má ganga eftir  fallegum stíg eða taka strætó frá hóteli.
Við bjóðum upp á úrval gististaða, 3,  4 og 5 stjörnur, bæði í Lido hverfinu og inni í borg. 

Madeira

Gaman að skoða

Fjölbreyttar kynnisferðir verða í boði, s.s. um höfuðborgina Funchal, í sjávarþorp, bændabýli, upp á Pico do Arieiro sem er hæsti tindur eyjarinnar (1818 m), um gömul eldfjöll og djúpa dali, gönguferðir og náttúruskoðun, þjóðleg kvöldskemmtun og fleira. Möguleikarnir eru óþrjótandi á þessari fallegu eyju með áhugaverða sögu og einstaka náttúru.  

Skoðunarferðir

Ferð: Kynnisferð um Funchal – hálfsdagsferð

Föstudagur 5. apríl 

Eftir morgunverð er haldið af stað í hálfsdags kynnisferð um Funchal. Í upphafi ferðar er farið í sérstaka útsaumsverksmiðju og fylgst með störfum og handbragði starfsmanna. Því næst er ferðinni heitið á líflegan og ekki síður litríka markað heimamanna en þar má sjá ótrúlegt úrval blóma, ávaxta, og grænmetis í öllum regnbogans litum. Þá verður ekið upp í fjöllin til smábæjarins Monte, þar skoðum við kirkju staðarins en þaðan er ótrúlegt útsýni yfir borgina. Ef aðstæður og tími leyfa gefst farþegum  tækifæri á að renna sér niður brekku í tágsleða – ekki á hverjum degi sem slíkt tækifæri býðst. (Athugið: sleðaferðin er ekki innifalin í verði / EUR 16.- á mann ) Að lokum er komið við í  vínkjallara þar farþegum gefst kostur á að bragða hinar ýmsu útgáfur af hinu fræga Madeira víni.  Síðan er ekið aftur til baka á hótelin en einnig er möguleiki á að verða eftir í miðbænum og skoða sig um á eigin vegum. Leigubílar eru á hverju strái í miðbænum svo það er auðvellt að koma sér til baka á hótelið.

Verð kr. 8.500 á mann

Innifalið í verði: Akstur, vínsmökkun og fararstjórn.

Ferð: Fegurð Madeira– dagsferð 

Sunnudagur 7. apríl 

Dagsferð um austurhluta eyjunnar sem þrátt fyrir smæð sína býður upp á mjög fjölskrúðugt landslag. Leiðin liggur frá suðri til norðurs að þriðja hæsta tindi  eyjunnar Pico do Arieiro sem er 1818 metra yfir sjávarmál. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir eyjuna.Næst er ekið að þorpinu Santana á norður hluta eyjunnar sem er þekkt fyrir hin sérstæðu hús sín með stráþakinu. Þar verður stoppað um stund. Hádegisverður borinn fram og farþegum gefinn frjáls tími að skoða sig betur um á staðnum. Á leiðinn til baka er ekið að útsýnisstað á austurhluta eyjunnar og stoppað þar um stund.

Verð kr. 9.900 á mann

Innifalið í verði: Akstur, hádegisverður og fararstjórn 



Ferð: Eira do Serrado og Camara de Lobos– hálfsdagsferð

Þriðjudagur 9. apríl

Hálfsdagsferð þar sem haldið verður áfram að skoða þessa fögru eyju. Í þessari ferð heimsækjum við þrjá áfangastaði.  Fyrst er ekið að útsýnishæðinni Pico Dos Barcelos þar sem við stoppum og njótum útsýnisins yfir Funchal borgina. Eira do Serrado er í um 1100 metra yfir sjávarmál og þaðan má sjá Curral das Freiras – Nunnudalinn –  og lítið þorp sem byggt er í gömlum eldgíg. Í lok ferðar er komið við í fallegu litlu sjávarþorpi Camara de Lobos og dvalið þar um stund. Camara de Lobos var ávallt mikill uppáhaldsstaður Sir. Winston Churchil sem dvaldi þar oft og málaði myndir af staðnum.

Verð kr. 4.900 á mann

Innifalið í verði: Íslensk fararstjórn og akstur.  

Ferð: Porto Moniz – dagsferð

Þriðjudagur 10. apríl

Ekið í norðvestur um einn fallegasta hluta Madeira um gróðursæl fjöll og dali með suðrænum gróðri og litlum þorpum sem kúra í fjallshlíðunum. Í upphafi ferðar er ekið til þorpsins Ribeira Brava sem er notalegur strandbær á suðvestur ströndinni, dvalið þar um stund. Þá er ekið afstað og komið við á bananaekru þar sem gert er stutt stopp og farþegar skoða og fræðast um þessa merkilegu plöntu. Áfram er haldið og nú að Cabo Giarao sem er hæsti sjávarklettur í heimi.  Fyrir utan það stórbrotna útsýni sem þaðan er fá farþegar tækifæri að standa á sérstökum glersvölum (svipuðum þeim sem eru í Grand Canyon í Bandaríkjunum –  bara í smækkaðri mynd !) alveg mögnuð upplifun – sér í lagi í heiðskíru veðri !  Ferðinni síðan haldið áfram til Porto Moinz á norðvestur tanga eyjunnar. Sérstaða þessa litla bæjar er staðsetning hans og hinar náttúrulegu sundlaugar sem myndast hafa í klettunum í sjávarmálinu

Verð kr. 9.900 á mann

Innifalið í verði: Akstur, hádegisverður og fararstjórn

Ferð: Skemmtiganga Levada do Monho 

Fimmtudagur  11. apríl 

Ekið til Lombada.Gangan hefst  við kirkjuna  í Lombada.  Í upphafi göngunnar er gengið fram hjá fjölbreyttu ræktunarsvæðum sem gefur göngunni skemmtilegt sjónarhorn.  í kyrrðinni innan um fallegan  suðrænan gróðurinn með tilheyrandi litadýrð. Þægileg ganga sem þar  sem hægt er að njóta  fallegrar náttúru þaðan er  frábært útsýni yfir dalinn og fallega þorpið Ponta do Sol Í lok göngunnar er hópnum ekið aftur til Funchal. 

Verð kr. 4.700 á mann

Innifalið í verði: Akstur, kvöldverður og fararstjórn.  

Ferð: Kvöldskemmtun með þjóðlegu ívafi

Sunnudagur 12. apríl

Skemmtilegur staður þar sem farþegar sjá þjóðdansa og söngvasýningu innfæddra á meðan snæddur er kvöldverður með þjóðarréttum eyjarskeggja. Grillað nautakjöt ásamt meðlæti. Góð kvöldstund sem enginn vill missa af. 

Verð kr. 9.900 á mann

Innifalið í verði: Akstur, kvöldverður og fararstjórn.  

Ath. Lágmarksþátttaka í ferð með íslenskumælandi fararstjóra er 20 manns, en bóka þarf kynnisferðir á Íslandi í síðasta lagi 3 dögum fyrir brottför. Hafa þarf í huga að uppselt getur verið í ferðina fyrir þann tíma.

Ath. Hægt er að bóka kynnisferðir þegar ferð er bókuð á netinu eða í gegnum síma 585-4000

Gistingar í boði á Madeira

Sæki gistingar...