Hópar

Vinnustaðurinn, útskriftarnemar, saumaklúbburinn eða stórfjölskyldan saman í ferð. Hvort sem um er að ræða sólarlandaferðir, sérferðir eða borgarferðir þá tökum við að okkur að gera tilboð.

Vinsælustu ferðirnar fyrir hópa eru eflaust borgarferðir á haustin og í auknum mæli eru hópar að fara í ferðir á vorin.

Fjölbreytt úrval okkar af slíkum ferðum hefur gert heilu fyrirtækjunum kleift að komast til áfangstaða sem annars eru ekki í alfaraleið.

Má þar nefna borgir eins og Edinborg og Malmö og Antalya á Tyrklandi svo eitthvað sé nefnt.

Skólahópar fara í ferð að prófum loknum og halda upp á þann áfanga á erlendri grund. Við tökum að okkur allar tegundir af skólahópum í allskonar ferðir.

Fyrirspurnir

Ertu að skipuleggja ferð fyrir 20 eða fleiri? Við finnum ferð fyrir hópinn hvort sem þið eruð 20 eða 500 og hvort sem leiðin liggur í borgarferð, sérferð, sólarlandaferð, styttri eða lengri ferðir til Evrópu, Ameríku, Ástralíu eða Asíu.

Ef við eigum ekki í handraðanum ferð sem passar ykkar hóp, tökum við að okkur að sérsauma ferð fyrir hópinn.

Sem sérfræðingar í hópferðum getum við verið lykilinn að vel heppnaðri ferð fyrir þinn hóp.

Sendu okkur tölvupóst og við höfum samband við ykkur sem fyrst.