Hvergi annars staðar á heimskringlunni finnur þú jafn mikla fjölbreytni og á Indlandi. Aðra eins litadýrð í mannlífi og menningu er vart hægt að hugsa sér. Á Indlandi kynnist þú glaðlegu og gestrisnu fólki, óvenjulega litríkum klæðaburði og andrúmslofti sem einkennist af æðruleysi og gagnkvæmri virðingu.
    Sæki dagsetningar...

    Verð og dagsetningar

    Sæki verð...
    Innifalið í verði: Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting, íslensk fararstjórn, innanlandsflug á Indlandi á milli Jaipur og Varanasi og frá Varanasi til Delí, 15 kg farangursheimild, gisting með morgunverði, hádegismatur 3 daga og kvöldverður 8 kvöld, allur akstur, skoðunarferðir og aðgangseyrir, og leiðsögn innlendra leiðsögumanna.
    Ekki innifalið í verði: Kostnaður við vegabréfsáritun, ferðaskilríki og afgreiðslu á landamærum eða þjórfé, tryggingar, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan.

    Ferðalýsing

    Athugið

    • Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur Úrval Útsýn sér rétt til að fella niður ferðina.
    • Staðfestingargjald er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
    • Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
    • Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
    • Flogið með Finnair um Helsinki. Einn flugmiði alla leið sem tryggir tengiflug og gefur kost á að innrita farangur alla leið